ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 7m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Rannsóknin mikla

09:41 › 2. júlí 2009

Ónefndur maður kom að máli við DV á dögunum og kvaðst hafa samið inngang að leikþætti um yfirheyrslu á vegum rannsóknarnefndar Alþingis sem falið hefur verið að komast að sannleikanum um bankahrunið. Leikþátturinn væri eintómur tilbúningur en alveg óhætt að birta hann. Sá ónefndi vildi hins vegar ekki skipta út nöfnunum þótt um tilbúning væri að ræða. Verður það látið gott heita en inngangurinn er eftirfarandi:  


 


Leikþátturinn:


Davíð Oddsson kemur fyrir rannsóknarnefndina. Frammi á biðstofu situr Kjartan Gunnarsson og bíður skýrslutöku.


Davíð gengur inn. Fyrir framan hann sitja Páll Hreinsson, Tryggvi Gunnarsson og Sigríður Benediktsdóttir, hugsanlega fleiri.


 


Páll: Góðan dag… Ég vil biðja þig um að segja til nafns og gefa upp kennitölu. Síðan verður þú að sverja þess eið að segja satt frammi fyrir nefndinni.



Davíð:
Já, svo þetta er ykkar vinna núna. Ég man þegar ég lét Ólaf G. Einarsson ráða þig í stöðu umboðsmanns Alþingis, Tryggvi minn. Hann var þá forseti Alþingis 1998 minnir mig. Það var löngu eftir að við sátum saman á Flokksfundum hér í den… En þú stóðst þig ágætlega á Morgunblaðinu…



Páll:
Má ég biðja þig um að svara einvörðungu spurningum okkar…


Davíð: Já, hvernig læt ég, Páll minn. Tryggvi er besti maður og hélt trúnað um símtal okkar vegna álits hans á Ólafi Berki frænda hér forðum þegar við gerðum hann að dómara. Reyndar botnaði ég ekkert í því áliti frekar en áliti hans á einkasyni mínum. Kannski tók ég sjö mínútna kast á þig, Tryggvi, þarna í símanum forðum út af Ólafi Berki frænda. Ertu nokkuð reiður ennþá?



Tryggvi:
Eigum við ekki að snúa okkur að efninu…



Davíð:
Jú, Tryggvi minn. Páll sessunautur þinn er annars vænn maður. Hann veit allt um vanhæfi og gekk frá stjórnsýslulögunum fyrir mig. Og líka upplýsingalögunum og sá svo til þess árum saman að fjölmiðlarnir væru ekki að hnýsast ofan í það sem þeim kemur ekki við. Hann var fínn formaður úrskurðarnefndarinnar um upplýsingamál. Og fjári góður þegar hann komst að því að alþingismenn hefðu engan lagalegan aðgang að upplýsingum umfram almenna borgara. Sniðugt, allt innmúrað. Páll er maður leyndarinnar sem nú ætlar að segja þjóðinni sannleikann um hrunið. Fyndið, he, he... Páll er annars hæfur maður á réttum stað. Við Björn Bjarnason reglubróðir vorum alveg sammála um þetta daginn áður en hann gerði hann að hæstaréttardómara. Ég man þetta vel.
 


Sigríður: Afsakið, herramenn, en verðum við ekki að gera stutt hlé?



Davíð:
Hver ert þú? Þú ert ekki innvígð og innmúruð er það? Heldur þú að þú hafir næga þekkingu á innviðum Flokksins til þess að skilja íslenska stjórnkerfið?



Sigríður:
Það erum við sem eigum að spyrja þig spurninga en ekki öfugt...



Davíð:
Ég get sagt þér eina góða sögu af Páli. Hann var þá formaður úrskurðarnefndar um upplýsingamál árið 2005 minnir mig áður en ég hætti sem ráðherra. Einhver hafði kært synjun landbúnaðarráðuneytisins vegna þess að þessi einstaklingur hafði ekki fengið frá ráðuneytinu ættbók cocker spaniel-hundsins. He, he. Einhver hundaræktandi býst ég við. Páll benti bara á að kæran væri fyrnd, ekkert þýddi að koma eftir fjóra mánuði þegar fresturinn í lögunum hans var aðeins 30 dagar. Svona er Páll tryggur í stóru og smáu. Ber gott skynbragð á hvað hæfilegt er að almenningur fái að vita og hvað ekki. Hann veit að þetta nýja Ísland gagnsæisins er bara kjaftæði.



Páll:
Nú spyr ég beint, Davíð: Voru þessi lán, endurhverfu lánin sem settu Seðlabankann á hausinn, ekki örugglega ætluð Landsbankanum, 100 milljarðar eða svo? Eða á ég að spyrja Kjartan?



Davíð: Spyrðu Kjartan endilega. Hann mun aldrei segja styggðaryrði um mig. Æ, hann missti eitthvað út úr sér í Valhöll eftir að hann hafði tapað milljörðum í bankahruninu. En það lagaðist um leið og ég hringdi. Rétt eins og forðum þegar ég hringdi í Tryggva.



Birt í DV 1. júlí 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?