Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur gefið út eftirfarandi yfirlýsingu:
„Borgarahreyfingin gaf það skýrt út í aðdraganda kosninganna að ekki væri hægt að taka afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu, nema að undangengnum aðildarviðræðum.
Niðurstaða þeirra, að lokinni víðtækri kynningu, yrði síðan borin undir þjóðaratkvæði. Var það niðurstaða hreyfingarinnar eftir miklar umræður, að þessi leið væri í anda þeirra lýðræðisumbóta sem að hreyfingin vill standa fyrir.
Stjórn Borgarahreyfingarinnar vill árétta að þetta er enn skýr stefna hreyfingarinnar. Lögum samkvæmt ber þingmönnum hreyfingarinnar hins vegar að kjósa samkvæmt eigin sannfæringu.“
Þessi yfirlýsing er væntanlega gefin vegna frétta um að þrír af fjórum þingmönnum flokksins ætli ekki að styðja aðildarumsókn að ESB nema Icesave verði fellt.
Spurningin er þá þessi:
Hverfa þeir frá sannfæringu sinni í ESB vegna
a) Icesave málsins
b) Lausn Breiðavíkurdeilunnar
c) Fyrningarleiðarinnar
d) Skattahækkana og niðurskurðar hins opinbera
e) o.s.fvr. o. s. frv...
Er þetta ekki kallað verslun með sannfæringu? Og ef um er að ræða verslun með sannfæringu, er þá um nokkra sannfæringu að ræða yfirleitt?
Er ekki fínt að fá þetta nýja siðferði inn á þing?



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
