ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 7m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Andóf innan VG gegn upplýstu lýðræði

21:40 › 11. júlí 2009

VG-þingmennirnir, Atli Gíslason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Þuríður Backman og Jón Bjarnason, hafa í raun ólýðræðislegan hátt á því að tjá andstöðu sína við aðild að ESB. Með því að heimta þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sækja eigi um aðild að ESB, búa þau til óþarfa millistig sem flækir lýðræðið og gerir það ógagnsætt og ómálefnalegt. Stjórnartillagan, sem meira að segja Ögmundur Jónasson styður, er sú að sækja um aðild þótt svo að hann sé andvígur aðildinni. Hann telur það gagnsærra og lýðræðislegra að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu að undangengnum umræðum um kostina og gallana þar sem fyrir liggur hvað er er í boði fyrir þjóðina í samskiptum við þjóðir sem skipta okkur mestu máli. Ögmundur veit að hann hefur fullt svigrúm til að berjast gegn aðild að ESB ef sú verður niðurstaða hans. Hann veit að hann fær tækifæri til að telja kjósendur á að betra sé að hafna samningi.
Þennan eðlilega og lýðræðislega þankagang ættu Þuríður, Jón Bjarna, Ásmundur, Lilja Rafney og Atli að reyna að skilja og tileinka sér frekar en að halla sér að fáránleika Sjálfstæðisflokksins.

Í samþykkt landsfundar VG fyrr á þessu ári segir: "
Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur nú sem fyrr að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins.  Sjálfsagt er og brýnt að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og sambandsins. Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsfundur telur mikilvægt að fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu fái rækilega umræðu og að hliðsjón verði höfð af væntanlegum stjórnarskrábreytingum og hvað eðlilegt getur talist þegar afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um framsal og fullveldi."
 
Ég er þess fullviss að afstaða Ögmundar Jónassonar er í betra samræmi við þessa yfirlýsingu en t.d. yfirlýsingar Ásmundar Einars Dalabónda. Ég trúi ekki að ögrun lýðræðislegrar samkeppni hugmyndanna sé Atla Gíslasyni þyrnir í augum. Hann á að vita að hann getur barist gegn ESB eins og hann vill þegar efnislegar niðurstöður eru lagðar fyrir þjóðina. Núverandi afstaða hans og fimmenninganna er útþynning lýðræðisins vegna þess að hún grefur undar grunnstoðum þess; umræðunni um raunverulega kosti.

Má ég svo enn minna á pistil minn um Steingrím J. leiðtoga VG frá 27. október sl.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?