ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 7m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Stund sannleikans rennur upp

22:40 › 22. júní 2009

Í viðtalsþáttum sínum við Davið Frost viðurkenndi Richard Nixon að hann hefði ekki farið að lögum, að hann hefði stundað yfirhylmingar. Hann hefði haft alla á móti sér og barist á mörgum vígstöðvum í einu; í Víetnam, í þinginu, við fjölmiðlana...

Nixon sagði af sér sem bandaríkjaforseti í kjölfar Watergate hneykslisins. Frost taldi hann á að ræða við sig í sjónvarpsþáttum sem sýndir voru nokkrum mánuðum síðar.

Nýleg kvikmynd um Nixon v. Frost færir okkur heim sanninn um það, hversu mikilvægt það er fyrir blaðamenn að styðja málflutning sinn með sannreynanlegum og haldbærum gögnum. Frost og aðstoðarmenn hans sýndu fram á að að Nixon vissi fyrr en ætlað var að menn hefðu brotist inn og snuðrað í höfuðstöðvum demókrata.

Frost náði taki á honum.

Spurningin er nú hver verður í sæti Nixons þegar íslenska bankahneyklsið verður upplýst.

Aðalatriðið er að upplýsingar eigi greiða leið að borgurunum, því hættan sem að þeim steðjar í nútímanum er fólgin í slagorðum, fullmatreiddum hugsanabrautum og hópskoðunum. Gegn þeim teflum við gagnsæinu. Með upplýsingar að vopni og nokkurri þjálfun hefur sérhver maður forsendur til þess að greina á milli þess sem unnt er að sannreyna og hins sem aldrei verður sannað. Þannig getur hann metið, andæft og gagnrýnt. Upplýstur maður metur sjálfur sannleiksgildi þess efnis sem borið er fram í fjölmiðlum og hvort það sé haldbært, nothæft eða gagnslaust.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?