ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 7m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvað meinar Jónas?

15:26 › 18. júní 2009


 


Einkennilegt með hann Jónas Kristjánsson.  Hann skammar Jón Kaldal ritstjóra og segir nánast að hann gangi erinda eigendanna þegar hann tekur tekur afstöðu gegn Evu Joly í leiðara. Er það kannski meining Jónasar að Jón Kaldal hafi hafist upp í ritstjórastól Fréttablaðsins fyrir þjónkun við aðaleigendur Fréttablaðsins?


Þegar menn lesa þessar tvær greinar hér að neðan, sem birst hafa á vef Jónasar um Jón Kaldal, blasir við mynd sem mér finnst að Jónas verði að útskýra .  Er Jón Kaldal maður sem hafist hefur af sjálfum sér í ritstjórastól  vegna góðrar frammistöðu sem blaðamaður eða er hann ritstjóri Fréttablaðsins vegna þess að hann er auðsveip málpípa eigenda blaðsins?  


 

17.06.2009
Jón Kaldal og Eva Joly
Gallinn við tillögu Jóns Kaldal ritstjóra um brottrekstur Evu Joly er, að hann er óframkvæmanlegur. Vantraust er svo mikið á íslenzku eftirliti og saksóknum, að Joly ein nýtur trausts. Hvort sem er innanlands eða erlendis. Verði hún rekin, hrynur allt, jafnvel lánshæfismat ríkisins og ríkið verður gjaldþrota. Rangt er hjá Jóni, að Joly hafi truflandi áhrif. Gagnrýnin á hana er bundin við lögmenn útrásarinnar, kerfiskarlana sem brugðust, svo og skúrka útrásarbanka og útrásarvíkinga. Fréttablaðið er í eigu útrásarvíkinga og hefur sem slíkt ekki traust til að láta taka mark á sér í þessu tilviki.


09.06.2009
Jón Kaldal ritstjóri
Jón Kaldal er einn orðinn ritstjóri Fréttablaðsins. Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra er hættur. Jón er fagmaður, hefur komizt þetta eftir brautum blaðamennskunnar einvörðungu. Það á að vera eina leiðin í faginu. Silkihúfur úr pólitíkinni hafa aldrei gefizt vel. Enda skil ég ekki, hvað sé unnið við að flagga þröngum flokkspólitíkusum framan í lesendur. Ritstjórn er margslungið fag, þar sem saman koma margir þættir í blaðamennsku. Ofan á það verður aldrei breidd nein slæða úr silkihúfum. Ég óska Jóni Kaldal til hamingju með að vera verðskuldað orðinn einn á toppnum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?