Ísland er „hrundasta“ land í heimi sagði hagfræðingur við mig í síma.
Hvergi á byggðu bóli hefur það gerst að heilt bankakerfi hrynur sem og gjaldmiðill í leiðinni.
Hvergi hefur kunningjaveldi valdið öðrum eins hörmungum með því að bjóða þjóð sinni ekki upp á færustu sérfræðinga til verka í eftirlitsstofnunum, seðlabanka og víðar.
Hvergi lifir þessi „yfirstétt“ kunningjaveldisins í jafn miklu öryggi refsileysisins og á Íslandi.
Þess vegna er Ísland sjálf „fyrirmyndin“, sjálft „módelið“, sjálf „uppskriftin“ að því hvernig algert hrun verður og hvernig unnt er að sneiða hjá því.
Þess vegna bíða háskólar heimsins, stofnanir og fræðimenn um heim allann, eftir skýrslu íslensku „sannleiksnefndarinnar“ 1. nóvember næstkomandi.
Þess vegna væri bagalegt ef starf hennar leystist upp vegna flumbrugangs og taugaveiklunar. Ábyrgð rannsóknarnefndar Alþingis er því mikil sem og forsætisnefndar Alþingis.
Blogg
Heimurinn mænir á Ísland
10:27 › 10. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
