Með hverjum deginum sem líður verður ljósara að íslensk stjórnmál eru komin í öngstræti. Hvorugur stjórnarflokkanna ætlar að gefa neitt eftir í ESB-málinu. Steingrímur J. boðar stöðugleikasáttmála í þjóðfélaginu. Hann endurtók það síðast á blaðamannafundi í gær að slíkan sáttmála megi gera með því að halda íslensku krónunni.
Jóhanna Sig. boðar stöðugleikasáttmála með líkum hætti. Hún telur ófært að koma á stöðugleika öðruvísi en að ganga í ESB og taka upp evru.
Elskendur lýðræðisins og þingræðisins, Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, boða sundrungu á þingi komi til þess að það fái að taka afstöðu til þess hvort sækja eigi um aðild að ESB.
Ást þeirra á þingræðinu og lýðræðinu varð endasleppt.
Látum vera þótt Jóhanna og Steingrímur J. hafi ekki tekist sem best að kynna þau góðu mál sem þau segjast hafa komið á koppinn í þágu heimila og atvinnulífs. Úr slíku má bæta.
En ég hlýt í andránni að taka undir svartsýnistal Halldórs Hermannssonar um þrasgjarna íslenska þjóð sem þrauka vilji í sjálfskaparvíti þjóðernislegrar sjálfsþurftarhyggju:
„ESB-sinnar þurfa ekki að láta sig dreyma um að íslensk stjórnmál nái einhverjum árangri eða nýjum hæðum í skynsamlegum ákvörðunum... Jafnvel þótt svo þingmeirihluti sé fyrir tafarlausri aðildarumsókn að ESB eftir kosningarnar. Ég þekki hugarfarið. Framsóknarmönnum er aldrei að treysta. Það verður aldrei hægt að fá VG til að sækja nærtækan stöðugleika og nýjan gjaldmiðil inn í ESB. Sjálfstæðisflokkurinn sleikir sárin. Einangrunarhyggja leiðtoga þessara flokka ræður ferðinni. Þeir breiða upp fyrir haus eins og fyrri daginn. Hér fljóta allir sofandi að feigðarósi sem endranær. Hér verður beðið eftir að Noregur taki af skarið og gangi í ESB sem verður seint og illa.“
Blogg
Íslensk þvergirðingsstjórnmál
17:25 › 6. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
