Jónas Kristjánsson skrifar svo í dag:
"Spennandi þríkantur í Kópavogi eru umboðsmenn óranna. Einn skipuleggur kynóra, annar trúaróra og sá þriðji peningaóra. Þeir tengjast á ýmsa vegu. Umbar kynóra og trúaróra fóru saman í stólpípur hjá Jónínu Benediktsdóttur í Póllandi. Umsjónarmaður trúaróra reis upp á fundi Flokksins í Kópavogi í gær og varði umsjónarmann peningaæóra gegn ofsóknum öfundsjúkra kommúnista í Samfylkingunni. Dótturfélag peningaóranna kemur útsvarsgreiðendum ekki við. Menn eiga að standa með fjölskyldum sínum, sagði umboðsmaður trúaróranna."
Sjá nánar á vefsíðu Jónasar.
Gunnar I. Birgisson kallaði fréttaflutning og umfjöllun í bæjarstjórn Kópavogs um tugmilljóna greiðslur til dóttur hans ofsóknir og áróður vinstri manna gegn sér og uppskar fagnaðarlæti fundargesta á fundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í gær.
Heldur Gunnar að gagnsæið umtalaða sé uppfinning vinstri manna? Las hann ekki endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins? Þar stendur meðal annars að stefna flokksins sé góð en einstaklinga verði að kalla til ábyrgðar. Ekki þurfi að breyta stefnunni heldur eigi að kalla þá sjálfstæðismenn til ábyrgðar sem villst hafi af "réttri leið".
Annars fylgdi fundur sjálfstæðismanna í Kópavogi í gær sama mynstri og landsfundur Sjálfstæðisflokksins þegar nær 1700 manns klöppuðu látlaust fyrir ræðu Davíðs Oddssonar. Hann hafði þá meðal annars hraunað yfir Vilhjálm Egilsson og tugi annarra sjálfstæðismanna sem samið höfðu endurreisnarskýrslu fyrir flokkinn.
Davíð er farinn.
Halldór Blöndal er farinn.
Geir H. Haarde er farinn.
Árni Mathiesen er farinn.
Gunnar er...
Blogg
Kópavogur: Leikhús fáránleikans
14:33 › 24. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
