ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Finnst mönnum þetta í lagi?

01:01 › 2. maí 2009

Ríkið ákvað að breyta 560 milljóna króna skuld Ríkisútvarpsins við ríkissjóð í hlutafé í síðustu viku.
RÚV var rekið með 60 milljóna króna halla á mánuði undanfarið hálft ár.
RÚV skarkar á auglýsingamarkaði í samkeppni við aðra fjölmiðla þrátt fyrir að vera með tryggar tekjur úr vösum skattgreiðenda.

Morgunblaðið fékk gefna eftir 3,5 milljarða króna hjá tveimur ríkisbönkum á dögunum. Til þess að bjarga miðlinum frá gjaldþroti. Mogginn tapaði 48 milljónum á mánuði allt árið í fyrra.

Má bjóða einhverjum að stofna fjölmiðil í þessu skrumskælda samkeppnisumhverfi sem ríkið býr fjölmiðlarekstri um þessar mundir?

Eða ætlar ríkið að gera eitthvað fyrir hina fjölmiðlana sem eru ekki reknir með 1 -2 milljóna króna tapi á dag og jafna samkeppnisstöðuna með þeim hætti?

Ætlar ný ríkisstjórn að endureisa atvinnulífið með því að svívirða grundvallarlögmál heilbrigðrar samkeppni? Brjóta samkeppnislög?

Finnst mönnum þetta í lagi?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?