Þór Saari, Borgarahreyfingunni, átti ræðu kvöldsins á Alþingi.
Ræða hans var vel hugsuð og vel byggð.
Ræða hans var beitt og gagnrýnin.
Ræða hans var stundum kaldhæðin.
Ræða hans var góð því um leið og hann gagnrýndi á báða bóga nefndi hann leiðir og lausnir.
Ræða hans var líka fyndin á köflum. Dæmi: Mótmælendur á Austurvelli tóku sprúttsölufrumvarp Sjálfstæðisflokksins af dagskrá þingsins og settu mál fólksins á dagskrá.
Aðgerðir til bjargar heimilunum kallaði hann teygjulausnir með árangurslausum innheimtuaðgerðum eða innheimtuaðgerðum ofan í gröfina. Já og hækkun vaxtabótanna kæmu þeim í 25 þúsund krónur að jafnaði á mann eða liðlega 2.000 krónur á mánuði. Þetta sagði hann vera gagnslaust.
Ljósið í myrkrinu sagði Þór vera fyrirhuguð umsókn um aðild að ESB, ekki síst vegna þess að ráðgert væri að leggja málið alfarið í hendur þingsins.
Gagnrýninn en uppbyggilegur Þór Saari!
Annars var Guðmundur Steingrímsson, Framsóknarflokki, einnig fyndinn í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld. Lauk henni með því að stefna ríkisstjórnarinnar væri "norður og niður - því miður."
Blogg
Þór Saari ræðumaður kvöldsins
21:37 › 18. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
