ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Forsetinn tekur valdi fólksins fagnandi

15:50 › 15. maí 2009

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, tók svo til orða við setningu Alþingis í dag:

„Í kjölfar bankahrunsins og áfalla í efnahagslífi, tíðra mótmæla á Austurvelli og átaka hér við Alþingishúsið var í byrjun febrúar mynduð ríkisstjórn til bráðabirgða og um leið ákveðið að leita til þjóðarinnar, treysta því að dómstóllinn sem hin lýðræðislega stjórnskipun Íslendinga byggir á, fólkið í landinu, myndi vísa veginn.  


Aldrei fyrr hefur Alþingiskosningar borið að með slíkum hætti og mikilvægt að geta nú fagnað því að þjóðin tók af öryggi og festu valdið sem henni bar í sínar hendur. Það sýnir styrk lýðræðisins meðal okkar og rætur þess í hugum fólksins, hefðum og siðum sem allir virða.


Þótt eðlilega sýnist sitt hverjum um úrslitin hlýtur sérhver Íslendingur, og þá jafnframt þingheimur í þessum sal, að þakka fyrir þá forsjá fyrri kynslóða að hafa mótað hér stjórnskipun og lýðræðislegt samfélag sem stóðst hina miklu þolraun, liðaðist ekki í sundur vegan átaka og erfiðleika sem sagan sýnir að lamað hafa ýmis ríki.“



Eða eins og segja mætti: Fólkið tók völdin, velti ríkisstjórn og kaus sér nýja eftir lýðræðiskerfi sem virkaði!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?