ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Upp með bókhaldið frá tímum einkavæðingar

19:09 › 8. apríl 2009

Ótrúlegt!

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skila 55 milljónum króna af því að það komst í fjölmiðla að flokkurinn hafði þegið slíkar fjárhæðir!

Samrýmist það gildum flokksins að þiggja 55 milljónir króna af Hannesi Smárasyni og Björgólfunum þá og því aðeins að slíkum mútugreiðslum verði haldið leyndum í launhelgum flokksins?

Flokkurinn ætlar að opna bókhaldið fyrir allt árið 2006.

Hvernig væri að fá að sjá bókhaldið árin 2005, 2004, 2003 og 2002, já aftur fyrir einkavæðingu bankanna?

Ætli Sjálfstæðisflokkurinn eigi kannski líka gjaldeyrisreikning erlendis?

Gott væri að sjá samanburðinn frá öðrum stjórnmálaflokkum.

Mörg undanfarin ár hefur Ísland verið efst á lista yfir óspilltustu lönd veraldar hjá Transparency International.

Hverjir láta alþjóðastofnanir, sem fylgjast með spillingu, hafa upplýsingar um Ísland?

Eru þeir með flokksskírteini?

Eða lifðu þeir í sömu blekkingunni og við hin?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?