ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Í nafni gagnsæis Andri

22:14 › 7. apríl 2009

Þegar upplýst er að FL-Group hafi rétt Sjálfstæðisflokknum 30 milljónir króna í einu lagi eftir að Andri Óttarsson varð framkvæmdastjóri flokksins ætti hann að hafa vit og rænu á að verða við kröfunni um gagnsæi stjórnmálanna og birta gögnin þessu til staðfestingar eða til þess að hrekja slíkar staðhæfingar.
Geir. H. Haarde, þá formaður Sjáflstæðisflokksins, sagði nánast orðrétt í október 2006, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekkert að fela og hefði aldrei haft, þegar hann kynnti nýtt samkomulag um fjárreiður stjórnmálflokkanna. Andri getur fengið þetta orðrétt, en Geir sagði þetta í sjónvarpi og stóð þá við hliðina á ekki minni manni gegnsæisins og opna samfélagsins en Kjartani Gunnarssyni, forvera Andra í framkvæmdastjórastöðu Sjáflfstæðisflokksins. 

Til að árétta að Andri njóti hér góðrar leiðsagnar skal vitnað til fréttar sem dv.is birti fyrir að verða ári síðan. Ungur og skynsamur maður hins opna þjóðfélags og gegnsæisins, maður endurreisnarskýrslunnar og opinnar umræðu innan Flokksins, hlýtur að birta þetta í hvelli.
Þannig dregur hann úr hneykslinu eða eyðir því með öllu. Allir vita að stjórnmálaflokkar fá framlög. Spurning lýðræðisins snýst um gegnsæi. Þanþol þess eykst þegar gegnsæisreglan er virt. Gott væri ef framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins tileinkaði sér gagnsæisregluna



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?