ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Fláráðir stjórnmálamenn

11:24 › 27. apríl 2009

Halldór Hermannsson, fyrrum útvegsbóndi á Ísafirði, studdi aðild að ESB fyrir 15 árum.
Á þeim tíma vildi hann meðal annars losna undan geðþóttavaldi íslenskra stjórnmálamanna og innleiða "byggðastefnu" ESB sem hann taldi vænlegri til dæmis fyrir heimabyggð Steingríms J. Sigfússonar á Norðausturlandi en fálmkennda byggðastefna íslenskra stjórnvalda. Honum fannst ekkert að því þótt Nestlé eða annað evrópskt fyrirtæki setti upp fiskréttaverksmiðju á Ísafirði.
Þetta var á árunum sem Finnar og Svíar gengu í ESB um miðjan síðasta áratug. .

Halldór sagði við mig í gær að ESB-sinnar þyrftu ekki að láta sig dreyma um að íslensk stjórnmál næðu einhverjum árangri eða nýjum hæðum í skynsamlegum ákvörðunum eftir kosninarnar  síðastliðinn laugardag. "Ég þekki hugarfarið. Framsóknarmönnum er aldrei að treysta. Það verður aldrei hægt að fá VG til að sækja nærtækan stöðugleika inn í ESB. Sjálfstæðisflokkurinn er rústir einar. Einangrunarhyggja eyjaskeggjanna og leiðtoga þessara flokka ræður ferðinni. Þeir breiða upp fyrir haus eins og fyrri daginn. Hér flýtur allt að feigðarósi áfram. Hér verður ekkert frumkvæði tekið. Hér verður beðið eftir að Noregur taki frumkvæðið sem verður seint og illa."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?