Þeir sem sækja vilja lóðbeint um aðild að ESB og bera samning undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu unnu sigur í kosningunum. Umsóknarsinnar í Borgrahreyfingunni, Framsóknarflokknum og Samfylkingunni hafa 34 til 35 þingmenn af 63. Samfylkingin getur auk þess haldið stjórnarsamstarfinu áfram með VG; staðan er 34 til 35 þingmenn þegar þetta er skrifað.
Samfylkingin getur einnig myndað meirihlutastjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Staða hennar býsna þægileg.
Augljósasta merkið um sterk ESB áhrif í kosningunum er að Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin voru á vaktinni þegar bankakerfið hrundi. Flokksmenn í báðum flokkum tóku við ríflegum styrkjum frá stórfyrirtækjum.
Sjálfstæðisflokknum er refsað en ekki Samfylkingunni.
Hver er skýringin?
Sennilega ESB áhrif sem sést einnig af góðu gengi Framsóknar og Borgarahreyfingar sem ekki pökkuðu í þjóðernisgrafirnar eins og VG og Sjálfstæðisflokkurinn.
Blogg
Sigur ESB-sinna
01:38 › 26. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
