Lítum á eftirfarandi staðreyndir um úrslit þingkosninganna í gær.
1. Sjálfstæðisflokkurinn geldur mesta afhroð frá stofnun flokksins fyrir 80 árum.
2. Frjálslyndi flokkurinn þurrkast út.
3. Nýr flokkur, Borgarahreyfingin, nær fótfestu á þingi.
4. Framsóknarflokkurinn nær sér á strik eftir djúpa lægð.
5. Samfylkingin (sósíaldemókratar) er í fyrsta skipti stærsti flokkur þjóðarinnar.
6. VG vann stærsta sigurinn.
Líklegt er að kjósendur hafi að þessu sinni fyrst og frems hafnað harðsvíraðri hægristefnu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum. Evrópumálin og spillingarmál drógu einnig úr fylgi hans.
Frjálslyndi flokkurinn var klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum, þurrkaðist út og er úr sögunni.
Borgarahreyfingin kemur inn í flokkakerfið í stað Frjálslyndra en er í rauninni klofningsframboð á vinstri kanti stjórnmálanna, út úr VG.
Samfylkingin bætir stöðu sína fyrst og fremst sem norrænn velferðarflokkur en einnig sem Evrópusinnaður flokkur. Staða Samfylkingarinnar er að sumu leyti spegilmyndin af hrakförum Sjálfstæðisflokksins.
VG vinnur sigur á sömu forsendum og Borgarahreyfingin; þessi öfl bera ekki ábyrgð á bankahruninu og eru sjálfgefin til þess að vinna að lýðræðisumbótum og lofta út úr spilltu kunningjaveldi sem grafið hefur um sig hér á landi á undanförnum árum.
Verður þetta nýja stjórnmálamynstur okkur til bjargar?
Við vitum það ekki ennþá.
Blogg
Hvað verður okkur til bjargar?
16:15 › 26. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
