Álitsgjafanum Gunnari Smára Egilssyni þykir fáránlegt að láta sér detta í hug að Samfylkingin leiti til Framsóknarflokks og Borgarahreyfingarinnar varðandi umsókn um aðild að ESB. Meirihluti þessara flokka á þingi sé naumur (33 þingmenn) og auk þess sé ekkert hægt að treysta einstaklingum í þessum hópi.
Þetta er rangt hjá Gunnari Smára og ber vott um venjubundna vantrú ef ekki fyrirlitningu á Alþingi og oftrú á íslenska ráðherraræðið sem hefur skyndilega látið á sjá.
Sannleikurinn er að Samfylkingin gæti með þegjandi samþykki VG borið upp tillögu á Alþingi um tafarlausa umsókn um aðild að ESB gegn því að niðurstaða samninga verði borin undir þjóðina, jafnvel í "leiðbeinandi" þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fyrir liggur að slík tillaga yrði samþykkt á þingi, jafnvel með stuðningi fjölda þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Það er svo allt önnur saga hversu hratt og örugglega aðildarumsókn verður hjálpræði þjóðarinnar í endurreisninni.
Blogg
Gunnar Smári á villigötum
12:40 › 26. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
