ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.0° 5m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Bölsýnn á íslensk stjórnmál

22:55 › 26. apríl 2009

„Og ég verð bara að segja það ég gagnrýni einhliða, elítukennda umfjöllun ákveðinnar hirðar hér í fjölmiðalheiminum í þessu máli."

Þannig tók Steingrímur J. Sigfússon leiðtogi VG og sérlegur málsvari íslenskrar alþýðu til orða í sjónvarpinu í kvöld. Og bætti við að það hafi áður reynst elítum hættulegt að gleyma þjóðinni.

Rétt er það. Hann kannast vel við það hvernig LÍÚ elítan gleymdi heilu landshlutunum með sérstöku liðsinni Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks við að halda úti gjafakvótakerfinu.

Hefur Steingrímur J. einkaleyfi á því að berjast fyrir íslenska alþýðu, maðurinn sem vildi fyrir skemmstu taka upp norska krónu? Hann vildi sjálfsagt gera það fyrir íslensku alþýðuna sem hann berst fyrir.

Muna menn ekki hvernig þeim heimóttarskap var svarað frá Noregi? Kurteislega: Nei vinir mínir, við höfum ekki áhuga.

Tilheyra ESB-sinnar í röðum kjósenda VG einhverri elítu? Ætli 30 prósent kjósenda VG vilji ekki láta reyna á umsókn milliliðalaust?  50 prósent? Enn fleiri?

Hvaða pirringur er þetta í Steingrími?

Hann hefur áreiðanlega verið að hugleiða slæma vígstöðu sína. Hann getur ekki einu sinni myndað ríkisstjórn með heimastjórnarflokknum - Sjálfstæðisflokknum um sína einangrunarstefnu. Og hluti VG er nú kominn inn í Borgarahreyfinguna sem vill milliliðalausa aðildarumsókn að ESB.

Við hvað er Steingrímur hræddur? Systurflokkar hans lifa góðu lífi innan ESB og stunda þar sína umhverfispólitík sem í eðli sínu eru fjölþjóðleg verkefni. Sænskir bændur eru bærilega glaðir með sinn hlut. Þeir sáu tækifærin í aðild og myndu fagna að fá Íslendinga með í norrænt samspil innan ESB.
LÍU vill nú sem endranær misnota fullveldið og sjálfstæðið til þess að treysta yfirráð sín yfir auðlindum sjávar. Einangrunarstefna þeirra er sérhagsmunabarátta.

Halldór Hermannsson, fyrrum útvegsbóndi á Ísafirði, studdi aðild að ESB fyrir 15 árum.
Á þeim tíma vildi hann meðal annars losna undan geðþóttavaldi íslenskra stjórnmálamanna og innleiða "byggðastefnu" ESB sem hann taldi vænlegri til dæmis fyrir heimabyggð Steingríms á Norðausturlandi en fálmkennda byggðastefna íslenskra stjórnvalda. Þetta var á árunum sem Finnar og Svíar gengu í ESB um miðjan síðasta áratug. Framsýnni maður Halldór en Steingrímur einangrunarsinni.

Halldór sagði við mig í dag að ESB-sinnar þyrftu ekki að láta sig dreyma um að íslensk stjórnmál næðu einhverjum árangri eða nýjum hæðum í skynsamlegum ákvörðunum eftir kosninarnar  síðastliðinn laugardag. "Ég þekki hugarfarið. Framsóknarmönnum er aldrei að treysta. Það verður aldrei hægt að fá VG til að sækja nærtækan stöðugleika inn í ESB. Sjálfstæðisflokkurinn er rústir einar. Einangrunarhyggja eyjaskeggjanna og leiðtoga þessara flokka ræður ferðinni. Þeir breiða upp fyrir haus eins og fyrri daginn. Hér flýtur allt að feigðarósi áfram. Hér verður ekkert frumkvæði tekið. Hér verður beðið eftir að Noregur taki frumkvæðið sem verður seint og illa."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?