Merkilegur þessi fundur í utanríkismálanefnd í gær.
Á fundinn mætti Geir H. Haarde. Hann kvaðst hafa mætt þar sem varamaður.
Var hann ekki búinn að stimpla sig út af þingi? Búinn að kveðja? Hættur?
Geir er ekki á listanum yfir varamenn í utanríkismálanefnd.
Á fundinn hafði verið boðaður embættismaður úr forsætisráðuneytinu til að fara yfir trúnaðargögn sem kynnt voru nefndinni að höfðu samráði við nefndina sem rannsakar bankahrunið.
Hefði skilið þetta ef Geir hefði verið boðaður sérstaklega á fund utanríkismálanefndar sem forsætisráðherra bankahrunsins.
Tók hann ekki örugglega fram fyrir hendurnar á embættismanninum?
Ævintýraleg framvinda sagði Siv Friðleifsdóttir eftir að hfafa komist í leynigögnin og bætti við að forsætisráðherra ætti að aflétta trúnaði um gögnin.
Menn komast hægt og bítandi að hinu sanna um bankahrunið:
1. Stór, feitur og latur stjórnmálaflokkur í langvinnum hægindum valdsins
2. Gráðugir bankamenn
3. Ónýtir embættismenn



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
