Stundum er sagt að maður sé það sem maður gerir - ekki það sem maður segist vera.
Setjum sem svo að ég hafi verið Suður-Afrískur borgari á níunda áratugnum og talað og skrifað gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnu hvíta minnihlutans og stjórn Pieters Botha. - Hefði ekki verið óeðlilegt að ég gengi inn í kjörklefann og kysi engu að síður Pieter Botha og hvíta minnihlutann sem hélst uppi að kúga blökkumenn í landinu?
Hallgrímur Helgason rithöfundur tekur Benedikt Jóhannesson á beinið fyrir misræmið á milli orða hans og gjörða í grein í Fréttablaðinu í dag. Benedikt hafði skrifað umtalaða grein í Morgunblaðið um nauðsyn þess að sækja strax um aðild að ESB. Sami Benedikt gekk lengra og hafði frumkvæði að www.sammala.is undirskriftunum sem hvetja einmitt til einmitt þess verknaðar að sækja strax um aðild. ESB-aðilidin virðist með öðrum orðum vera afdráttarlaus sannfæring þessa greinda og hugsandi manns.
Benedikt hefur síðar látið koma fram á vefsíðunni heimur.is að hann ætli þrátt fyrir þetta að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sinn áfram. "En sem kunnugt er telur Sjálfstæðisflokkurinn hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins," eins og Hallgrímur skrifar. "Hann (Benedikt) ætlar að nota atkvæði sitt gegn eigin sannfæringu.Hann ætlar að taka rótgróna flokkshlýðni fram yfir sjálfstæða hugsun... Af öllu því góða fólki sem hefur lýst sig sammála okkur í Evrópumálunum vona ég að Benedikt verði sá eini sem ætlar að kjósa þvert á skoðanir sínar."
Svo skrifar Hallgrímur sem komið hefur fram í heilsíðuauglýsingum með Benedikt frá www.sammala.is.
Guðmundur Finnbogason sagði árið 1924 að stjórnmálaflokkar væru stríðandi heild og fyrsta skilyrði þess að flokkur verði sigursæll sé að flokksmennirnir séu samhuga og fylgist vel að málum, "að hver maður breiði út þær skoðanir, er flokkurinn heldur fram, og reyni að auka þeim fylgi. Þess vegna verða stjórnmálaskoðanir hvers flokks brátt einskonar trúarbrögð flokksmanna. Þar myndast trúarsetingar, sem ætlast er til að allir flokksmenn fylgi, og hver, sem fer að hugsa sjálfstætt um málin og koma fram með ágreiningsatriði við skoðanir flokksstjórnarinnar, verður brátt vargur í véum, því hann er hættulegur fyrir samheldnina, dregur úr trúaráhuganum og leysir sundur, í stað þess að binda saman. Það eru talin svik við flokkinn að halda fram öðrum skoðunum en þeim, sem koma heim og saman við stefnu hans. Þar sem svona er í garðinn búið, þá er ekki von, að stjórnmálaflokkar verði neinar gróðrarstöðvar frjálsrar hugsunar um þjóðmálin og rannsóknar á þeim. Aðaláhuginn snýst um það að halda saman, vinna sigur á öðrum flokkum, ná í völd og halda þeim. Þar með verða flokkshagsmunirnir brátt aðalatriðið í baráttunni."
Tekur Benedikt flokkshagsmunina fram yfir sannfæringu sína?
Blogg
Sannfæring víkur fyrir flokkshagsmunum
12:31 › 24. apríl 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
