ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvenær tekur rithöfundurinn sönsum?

14:00 › 18. apríl 2009

Hlustaði á þáttinn Vikulokin á Rás 1. Þar sat Einar Már Guðmundsson rithöfundur og frambjóðandi VG.

Hann sagði að koma þyrfti upp starfhæfu þjóðfélagi og efla velferðina. Að mörgu þyrfti að hyggja, jú og hann væri opinn fyrir öllu...

Með Einari Má í talstofu sat Benedikt Jóhannesson og lýsti líkum á öðru hruni, nú mætti engan tíman missa.

Benedikt hafði í Moggagrein lýst eftirfarandi framvindu ef ekki yrði farið í viðræður við ESB, boðið upp á raunhæfa og nærtæka aðgerð:

1) Stórfyrirtæki flytja höfuðstöðvar sínar úr landi
2) Útlendingar þora ekki að fjárfesta á Íslandi
3) Fáir vilja lána Íslendingum peninga
4) Þeir sem vilja lána Íslendingum peninga gera að á okurvöxtum
5) Atvinnuleysi, vaxtaokur og gjaldþrot verða viðvarandi
6) Þjóðin missir af Evrópulestinni næstu tíu ár
7) Íslendingar verða áfram fátæk þjóð í hafti

Benedikt er að gefast upp á flokki sínum, Sjálfstæðisflokknum vegna þjóðernisafturhaldssemi og hræðsluáróðurs.
Einar Már tekur hins vegar undir með Davíðsarminum í áróðrinum gegn ESB.
Einar Már ætlar að byggja þjóðernisfullveldissjálfstæðisbrú framtíðarinnar milli VG og kristilega þjóðernis-Sjálfstæðisflokksins.
Er Einar Már búinn að gleyma því að Sjálfstæðismenn nota fullveldið og sjálfstæðið til að hamra á séreignarrétti yfir auðlindum þjóðarinnar, "Höldum fullveldinu og sjálfstæðinu drengir til að hafa fullt svigrúm til að afhenda vinum okkar fiskinn, orkuna, jarðvarmann og vatnið."

Kæri Einar Már.  Eitt sinn sagði Willy Brandt að Evrópusambandið væri besta tækið sem fundið hefði verið upp til þess að frelsa óbreytta borgara undan geðþóttavaldi stjórnmálamanna og stjórnvalda í aðildarríkjunum. Það hefur gefið borgurum sínum vald til þess að stefna stjórnvöldum sínum, draga þau fyrir dóm í nafni evrópuréttar og fá þau dæmd fyrir að fylgja góðum stjórnarháttum og og almennum meginreglum.

Hættu þessu rugli Einar Már. Það ætlar enginn að hneppa þig í meiri fjötra en íslenskum stjórnmálamönnum hefur nú þegar tekist að gera.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?