Bjarni Benediktsson, formaður Sjáflstæðisflokksins, segist hafa gert allt sem í sínu valdi stendur til að varpa ljósi á ofurframlög bankaeigenda til Valhallar. Bókhald flokksins hafi verið opnað, fyrrverandi formaður hafi axlað ábyrgð, ákveðið hafi verið að endurgreiða styrkina og framkvæmdastjóri flokksins hafi sagt starfi sínu lausu.
Bjarni botnar því ekkert í áhuga fjölmiðla á málinu sem hann telur uppgert og þar af leiðandi úr sögunni.
Bjarni þarf að gera sér grein fyrir eðli hneykslismála í opinberu lífi. Þau hafa ekki verið sérlega tíð hér á landi vegna þess hversu sterk þöggunaráhrif þéttriðinna hagsmuna- og kunningjatengsla hafa verið í íslenskum stjórnmálum, einkum í flokki Bjarna, sem er hinn eini sanni valdaflokkur lýðveldisins.
“Ef við værum annars staðar þá væri ríkislögreglustjóri búinn að gera húsleit í Valhöll,” sagði Svanur Kristjánsson, stjórnmálafræðiprófessor í Speglinum á Rás eitt síðastliðinn þriðjudag. Hann bætti við: “Hann (ríkislögreglustjórinn) væri búinn að gera húsleit á skrifstofum þessara fulltrúa sem hafa verið nefndir til þess að rannsóknargögnum sé ekki spillt... Íslenska kerfið, dómskerfið og lögregluyfirvöld ráða ekki við þetta mál.”
Svanur var þarna að vísa til þess að grunur væri uppi um alvarleg mútubrot og einmitt af þeim ástæðum þyrfti að rannsaka málið.
Það sem á Bjarna er lagt
Í raun er alveg fráleitt að ætlast til þess að nýkjörinn formaður Sjáflstæðisflokksins gangi sjálfur í að gera upp meint spillingarmál innan flokksins með því að reka framkvæmdastjórann, koma syndunum yfir á fráfarandi formann og segja svo að málum hafi verið kippt í lag.
Enginn er auk þess dómari í eigin sök. Sjálfstæðisflokkurinn bað um rífleg framlög og kunningja- og samtryggingarbræðralag stjórnmálamanna og viðskiptajöfra innan flokksins brást við með óvenjulega raunsnarlegum hætti. Það gerðist óvart á tímum þegar stjórnmálamenn og auðmenn einblíndu á orkulindir og útrás orkugeirans.
En ennig er hugsanlegt að eigendur bankanna hafi með rausnarskap sínum verið að þakka fyrir að fá að njóta þess frelsis sem frjálshyggja Sjálfstæðisflokksins hafði fært þeim á fjórum kjörtímabilum eða svo.
Æ sér gjöf til gjalda
Höfðingjar eru þeir sem veitt geta öðrum af gæðum sem þeir ráða yfir og hafa nóg af. Með rausnarskap öðlast menn orðstír velvildar og verða nafntogaðir höfðingjar.
En „æ sér gjöf til gjalda“. Hvernig geta fátækir menn endurgoldið höfðinglegar gjafir? Hvernig getur fátækur Sjálstæðisflokkur endurgoldið höfðingskap bankaeigenda?
Það er gert með hollustu við höfðingjana. Þannig verða áhrif þeirra sýnileg og vald þeirra því áþreifanlegra sem hirð þeirra stækkar.
Eigendur bankanna voru að sumu leyti komnir í stöðu höfðingjanna á þjóðveldisöld. Drottnunarvald þeirra ágerðist. Auðræðið tók á sig mynd og æ sjálfsagðara varð að kaupa sér stjórnmálaáhrif eins og hvað annað. Að vísu hafði löngu áður verið lögð gullæð frá LÍÚ í Valhöll sem færði sjálfstæðismönnum næringu og kraft til þess að takast á við óvini kvótakerfisins. Glík skulu gjöld gjöfum.
Hið flekklausa lýðræði
Að leggjast á bakið eins og hundur, sem sýnir skilyrðislausa uppgjöf, er vel þekkt viðbragð frá öðrum löndum til þess að draga úr þunga hneykslis. En það dugar ekki alltaf, einkanlega þegar grunngildi samfélagsins hafa verið vanvirt og siðaboð fótum troðin.
Bjarni formaður ætti að velta því fyrir sér hvernig unnt sé að bregðast við þegar flokkur hans hefur þverbrotið regluna um hófsemi í opinberu starfi, vanvirt viðmið um heiðarleika í opinberu lífi og látið kröfuna um gott fordæmi stjórnmálamanna sem vind um eyru þjóta.
Hvernig passar Sjálfstæðisflokkurinn inn í nýju myndina um flekklaust og gagnsætt lýðræði hins nýja Íslands?
(Birt í DV 16.apríl 2009)




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
