ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Björn í boði Baugs

11:49 › 11. apríl 2009

Stjónmálaflokkarnir heyja nú ódýrustu kosningabaráttu sögunnar. Það er að segja; hún er öll á kostnað Sjálfstæðisflokksins.
Frá lokum janúar hefur Sjálfstæðisflokkurinn einbeitt sér að því að safna fylgi fyrir núverandi stjórnarflokkana og hefur lagt í mikinn fórnarkostnaði við að halda samnlögðu fylgi Samfylkingarinnar og VG vel yfir 50 prósentum sem skilar þeim 37 - 40 þingmönnum af 63 eftir kosningar.

Herfræði Sjálfstæðisflokksins er margslungin. Hér eru nokkur atriði hennar:

- Björn Bjarnason lýsir yfir að Sjálfstæðisflokkurinn klofni ef landsfundur samþykki að sækja um aðild að ESB og samningsniðurstaða verði borin undir þjóðaratkvæði.

- Landsfundur samþykkir að pakka í þjóðernisskotgrafirnar og setja ESB og gjaldmiðilsvanda þjóðarinnar á ís í 14 ár í viðbót. Flokkurinn losnar þar með við 15 prósent kjósenda sinna þ.e. harða ESB-sinna. Meira en helmingur flóttamannanna kýs stjórnarflokkana, hinir sitja heima á kjördag.

- Þingflokkurinn leggst gegn lýðræðisumbótum, gegn auknum möguleikum til að bera mál undir kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu og tilraunum til að setja í stjórnarskrá ákvæði um að náttúruauðlindir séu þjóðareign. Þeir vilja að orkulindir séu einkaeign eins og óveiddur fiskur í sjó. - Málþóf á Alþingi hrekur nokkur prósent til viðbótar frá flokknum.

- Davíð Oddsson flytur tímamótaávarp á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um útlendingahatur og níðinga innan flokksins. Davíðsarmurinn klappar, en fjöldi sjálfstæðismanna bætist í hóp þeirra sem ætla að sitja heima á kjördag.

- Þjóðin er upplýst um að Björn Bjarnason sé eftir allt saman í boði Baugs og Hannesar Smárasonar. Þetta verður ljóst þegar fjölmiðlar uplýsa um 55 milljóna króna framlög til Sjálfstæðisflokksins frá FL-Group og Landsbankanum. Þriðjungur sjálfstæðismanna er agndofa yfir spillingunni. Margir ganga úr flokknum, aðrir ætla að sitja heima, enn aðrir íhuga að kjósa stjórnarflokkana, jafnvel Borgarahreyfinguna.

- Sjálfstæðisflokkurinn logar í illdeilum. Davíðsarmurinn reynir að bola Guðlaugi Þór út en tekst ekki. Hann veit of mikið. Reynt að koma sök á Geir Haarde og Andra Óttarsson, menn sem standa ekki í eldlínunni fyrir kosningarnar. Dæmt til að mistakast. Mörgum fallast hendur.

Niðurstaðan er sú að stjórnarflokkarnir halla sér makindalega aftur á bak í hægindastólum, leggja kosningapeninga sína  inn á bók og leyfa Sjálfstæðisflokknum að reka fyrir sig best lukkuðu kosningabaráttu VG og Samfylkinginar frá upphafi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?