ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Skrímsladeildin heimtar meira blóð

20:53 › 10. apríl 2009

Sjálfstæðisflokkurinn tók við 55 milljónum króna frá Hannesi Smárasyni og Björgólfunum fyrir meira en tveimur árum. Búinn að eyða þeim.
Hann hætti við að taka við 55 milljónunum meira en tveimur árum síðar þegar fjölmiðlar komust að öllu saman. Þarf sjálfsagt að taka lán til að endurgreiða  “skítuga peninga”.


Forkólfar flokksins segja núna að viðtaka milljónanna 55 stríði gegn grundvallargildum flokksins.


 


Stríddi það einnig gegn grundvallargildum flokksins þegar hann sendi tvo “stafnbúa” í flokknum á fund Jóns Ólafssonar til þess að heimta af honum 5 milljónir í flokkssjóðina árið 1995?


Fyrir fuglatístara á AMX-vefnum, sem telja að spillingin í Sjálfstæðisflokknum sé fréttamönnum ofviða, skal upplýst, að samkvæmt hækkun neysluvísitölunnar er eru 5 milljónirnar um 9,7 milljónir í dag!


 


Trúa sjálfstæðismenn því að 55 milljóna króna framlag FL-Group og Landsbankans árið 2006 hafi verið hluti af góðgerðarstarfsemi í þjóðfélaginu?
Hvaða “vöru” ætluðu þeir að “kaupa” sem réttu Sjálfstæðisflokknum 55 milljónir króna?
Orkulindir? Orkufyrirtæki? Samstarf um orkuútrás?


 


Heppilegt að láta Geir H. Haarde taka á sig alla sökina sem hættur er í pólitík. Láta syndaklafann á bak Geirs og henda honum út. Og heimilisvininum Andra Óttarssyni.

Skrímsladeildin í flokknum heimtar meira blóð. “Út með Guðlaug Þór... hann var áreiðanlega málaliði útrásarvíkinganna. Látum hann axla ábyrgðina...”
Forystan getur það ekki. Guðlaugur Þór veit of mikið...
Hvar ætli þetta stöðvist?
-----
Lítil gáta: Hvað er sameiginlegt með Sjálfstæðisflokknum og Sinfóníuhljómsveit Íslands?
Svar: Stærstu styrktaraðilar beggja voru FL-Group og Landsbankinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?