ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

"Margt vitlausara" sagði Jóhanna

23:08 › 3. mars 2009

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, kærir sig ekki um að leyfa Íslendingum að taka upp norska krónu í stað þeirrar íslensku.

Jens Stoltenberg vísar Steingrími J. og Katrínu og þeim hinum í VG góðfúslega á Evrópusambandið og evruna.

Jens Stoltenberg (Verkamannaflokkurinn) langar líka inn í Evrópusambandið og í evruna en fær það ekki fyrir Kristínu Halvorsen hjá VG í Noregi (Sósíalíski vinstriflokkurinn), en hún er fjármálaráðherra í ríkisstjórn hans.

Stoltenberg og Halvorsen gengu bundin til kosninga í Noregi haustið 2005, í rauðgrænu bandalagi ásamt Áslaugu Haga í Miðjuflokknum. Einsettu sér að verja velferðarkerfið, hemja einkavæðinguna og bæta sveitarstjórnarstigið.

Þetta gekk upp. Þau unnu naumlega.

Í haust verður kosið til stórþingsins á ný í Noregi. Staða rauðgræna bandalagsins fer batnandi eftir því sem kreppan dýpkar. Framfaraflokkurinn og Hægriflokkurinn hefðu náð meirihluta í Stórþinginu norska ef kosið hefði verið í fyrrasumar.

Skyldi rauðgræna bandalagið ganga á ný bundið til kosninga?

Nú langar Monu Sahlin, leiðtoga sænskra sósíaldemókrata, til þess að leika sama leikinn í Svíþjóð í þingkosningum á næsta ári. Mynda rauðgrænt bandalag með umhverfissinnum og Vinstriflokknum.
Þau ætla að bregðast við kreppunni með grænni þróun á vinnumarkaði, grænni tækniþróun, standa vörð um velferðarkerfið, gera upp við nýfrjálshyggjuna.

Við sjáum hvað setur.

Rauðgrænt bandalag sem gengur bundið til kosninga á Íslandi 25 apríl?
"Margt vitlausara," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í dag.
Steingrímur hefur kallað eftir slíku bandalagi síðan fyrir kosningarnar 2007.

Við sjáum hvað setur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?