Davíð Oddsson hefur nú gert pólitískum andstæðingum Sjálfstæðisflokksins þann greiða að láta nærri tvöþúsund manna landsfund flokksins líta út sem leiðitama trúarsamkomu átrúnaðargoðs sem líkir sjálfu sér við Messías.
Halelújá!
Bitur og tapsár hraunaði hann yfir flokkssystkini sín. Þau klöppuðu.
Vilhjálmur Egilsson, sem árum saman hefur gagnrýnt peningamálastefnu Davíðs, fékk það óþvegið.
Þögn sló á söfunuðinn.
Hann hraunaði yfir útlendinga og fordæmdi að Jens Stoltenberg hefði leyft sér að spígspora um gólf í Seðlabankanum. Slíkt hefði engin þroskuð þjóð látið viðgangast um víða veröld.
Klapp!
Þetta er þjóðernisofstækið sem flokkurinn bognaði fyrir á landsfundi sínum í fyrradag þegar hann samþykkti að reisa múra, víggirðingar og gaddavír í kring um landið og hleypa 10 þúsund volta spennu á allt draslið til þess að halda Stoltenbergum og Evrópumönnum frá landinu.
Enn var klappað.
Eftir Davíðshrun bankanna þarf ekkert að reisa neina víggirðingu kring um þessar 300 þúsund hræður sem hér búa. Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins stendur í 820 punktum og engum heilvita útlendingi (sem heimastjórnarmenn hatast við) dettur í hug að fjárfesta hér á landi.
Davíð fagnaði þessari einangrunarhyggju; hann stendur fyrir henni sjálfur og hatast við allt sem evrópskt er.Heimastjórnarmenn í Flokknum vilja líka nota sjálfstæðið og fullveldið til að ná yfirráðum yfir auðlindum þjóðarinnar sem Davíð og Sigurður Kári Kristjánsson vija koma í séreign dyggra manna með flokksskírteini. Enda sagði Sigurður Kári berum orðum á landsfundinum:
“Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá felur það í sér að Sjálfstæðisflokkurinn vill standa utan við Evrópusambandið. Og því fagna ég.”
Dagens Nyheter hefur út frá eðlilegum prófsteinum um verðbólgu og fjármálastöðugleika komist að því að Davíð var versti seðlabankastjóri í Evrópu. Enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana.
DN tekur sérstaklega til þess að Davíð Oddsson kennir öllum öðrum um hrunið en sjálfum sér.
Hann sannaði þá kenningu sjálfur á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Blogg
Messías og söfnuðurinn
11:54 › 29. mars 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
