Eftirfarandi skrifaði ég í kjallaragrein í DV síðastliðinn fimmtudag, daginn sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins hófst:
"Líklegasta niðurstaða landsfundar Sjálfstæðisflokksins um stærsta átakamál samtímans, nýjan gjaldmiðil og nýja tegund af sambandi við nágranna okkar og helstu viðskiptavini, er eftirfarandi:
Hagsmunir útgerðar og landbúnaðar verða teknir fram fyrir þá brýnu heildarhagsmuni þjóðarinnar að samþykkja aðildarumsókn að ESB og stefna einarðlega að upptöku evru til að tryggja þann stöðugleika sem þjóðin þarf svo sárlega á að halda. Íslenskur útvegur á enn um sinn að geta sölsað undir sig veiðikvóta nágrannalanda án þess að þau fái að njóta jafnræðis og gagnkvæmni.
Landsfundarfulltrúar voga sér hins vegar ekki að fara gegn tillögum um að einhver útgáfa af Evrópumálinu verði lagt í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þætti tilræði við lýðræðið og kæmi illa við ímynd flokksins ef hann á sama tíma hafnar því á Alþingi að greiða fyrir persónukjöri með einföldum lagabreytingum."
Nákvæmlega þetta hefur ræst. Ályktunin, sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti degi síðar um ESB er svofelld:
"Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið að aðild að Evrópusambandinu þjóni ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar en jafnframt talið mikilvægt að sífellt sé í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi Evrópuríkja.
Endurnýjað hagsmunamat hefur ekki leitt til grundvallarbreytinga á afstöðu Sjálfstæðisflokksins. Kostir aðildar tengjast helst gjaldmiðilsmálum og ljóst að ýmis álitamál verða aðeins skýrð í viðræðum, hvort sem þær snúast um gjaldmiðilinn eða aðild. Sterk lýðræðisleg rök mæla engu að síður með því að þjóðin fái að skera úr um svo stórt og umdeilt mál og að það sé ekki eingöngu á forræði stjórnmálaflokkanna.
Landsfundurinn undirstrikar þá eindregnu stefnu Sjálfstæðisflokksins að ekki verði gefin eftir til annarra þjóða eða samtaka þeirra yfirráð yfir auðlindum Íslands og að standa beri vörð um innlenda matvælaframleiðslu.
Landsfundur telur að setja skuli ákvæði í almenn lög um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna og þær lágmarkskröfur sem gera á um stuðning við mál á Alþingi og við þjóðaratkvæðagreiðslu.
Komist Alþingi eða ríkisstjórn að þeirri niðurstöðu að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu er það krafa Sjálfstæðisflokksins að fara skuli fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þá ákvörðun á grundvelli skilgreindra markmiða og samningskrafna.
Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar þá afstöðu sina að hugsanleg niðurstaða úr samningsviðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði ávallt borin undir þjóðaratkvæði."
Sjálfstæðisflokkurinn: Fyrirsjáanlegur íhaldsflokkur.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
