ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Útgerðar-Mogginn

12:34 › 2. mars 2009

Þótt sumar útgerðir séu bærilega stöndugar er ekki þar með sagt að neinir peningar liggi á lausu hjá þeim frekar en öðrum í þeim efnahagshamförum sem þjóðin fer nú gegn um.

Það vekur því nokkra athygli hversu ríkulega útgerðarpeningar koma við sögu við að endurreisa Morgunblaðið, sem farið var á hvínandi hausinn löngu fyrir bankahrunið. Það fékk áreiðanlega flokksbundna fyrirgreiðslu tveggja banka langt fram yfir andlátið þótt það tapaði milljón á dag og hefði gert misserum saman.
Ætli það hafi vafist eitthvað fyrir Kjartani Gunnarssyni, bankaráðsmanni í gamla Landsbankanum, að samþykkja lán upp á hálfan milljarð króna fyrir Árvakur fyrir bankahrunið? Kjartan er nú sagður meðal nýrra eigenda útgáfunnar.

Það að sínu leyti leiðir hugann að því að rauðgræn ríkistjórn Samfylkingar og VG  hefur í hyggju að setja í stjórnarskrá ákvæði um að náttúruauðlindir séu ævarandi sameign þjóðarinnar.

Þegar slíkt ákvæði er orðið hluti af stjórnarskrá lýðveldisins er dagljóst að eigandi auðlindarinnar - þjóðin -  getur varla gert neitt annað en að leysa til sín kvótann með einhverjum hætti og leigja hann út til lengri eða skemmri tíma á jafnræðisgrundvelli. Fylgja mannréttindaskrá SÞ.
 
Þetta vita menn eins og Pétur H. Pálsson hjá Vísi í Grindavík og Þorsteinn Már Baldvinsson hjá Samherja. Líka Guðbjörg Matthíasdóttir frá Vestmannaeyjum sem lætur Gunnlaug Sævar Gunnlaugsson sjá um að ávaxta það fé sem hún náði út úr Glitni kortéri áður en hann féll. Öll eru þau nýir hluthafar í endurreistum Árvakri.  
Þetta veit líka Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki, innsti koppur í búri S-hópsins og Framsóknarmanna, sem rær nú í óreyndri forystu Framsóknarflokksins. Kannski skiptir eignarhald á kvótanum hann miklu máli. 

Eiginlega fór Morgunblaðið að sýna sitt rétta andlit í leiðara strax í dag. Tala um uppgjör Flokksins. Ætli það sé ekki Flokkur blaðsins? Verður Mogginn ekki á ný blað Flokksins?

Það kemur í ljós á næstunni hver hagsmunagæsla blaðsins verður; hvort Morgunblaðið ætli að þjóna útgerðarsérhagsmununum í stjórn Árvakurs jafn dyggilega og "Baugsmiðlarnir" voru sagðir þjóna hagsmunum eigenda sinna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?