Ég vil nefna nokkur atriðið sem breytt hafa Íslandssögunni undanfarnar vikur en bið lesendur endilega að bæta við listann:
1) Bankahrunið á Íslandi í byrjun október.
2) Yfirlýsingar um að Íslendingar ætli aðeins að endurgreiða hvítum mönnum en ekki svörtum.
3) Hryðjuverkaárás breskra blökkumanna á Ísland. Þjóðir af sama kynþætti í ESB fylgja þeim að málum.
4) Sigur blökkumanna í Evrópusambandinu í frelsisstríði þeirra við Íslendinga. Íslensk stjórnvöld skrifa undir friðarsáttmála um að allir menn séu jafnir óháð litarhætti og Íslendingum sé skylt að borga líka blökkumönnum innan ESB, líka Bretum.
5) Ku Klux Klan hópur stofnaður í Seðlabankanum til þess að vernda hvíta íslenska kynþáttinn.
6) Helmingur þjóðarinnar lítur í spegil og sér að hún er svört eins og sauðsvartur almúginn í ESB-löndunum. Vill ganga þeim á hönd og deila kjörum með íbúum innan ESB.
7) Hinn helmingurinn trúir því ekki að hann sé svartur og telur að um sólbrúnku sé að ræða. Hringlar í íslenskum krónum í vösum sínum og syngur hástöfum:
Ég fer í ljós þrisvar í viku
Og mæti reglulega í líkamsrækt
Ég fer í Hollywood um helgar
Með mynd af bílnum í vasanum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
