Það er rétt sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í umræðum um stefnumið ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gærkvöldi:
"Óhjákvæmilegt er að líta til þeirra tenginga sem eru á milli atvinnu-, efnahags- og stjórnmálalífs í landinu þegar við ráðumst gegn spillingu í okkar samfélagi. Við skulum hefja þá göngu núna og við skulum hefja hana saman. Um leið skulum við halda okkur við siðlegar aðferðir við uppgjörið. Við skulum halda í heiðri þá grundvallar réttarreglu að enginn er sekur fyrr en það hefur verið leitt í ljós lögum og reglum samkvæmt. Höldum í heiðri mannréttindi allra og gætum þess að uppgjör okkar snúist ekki upp í “nornaveiðar” af neinu tagi. Við búum í réttarríki og það er hvorki vilji ríkisstjórnar né alþingismanna að ganga á svig við meginreglur réttarríkisins."
Þetta er ábyrg og siðleg afstaða. Við verðum að fylgja meginprinsípum. Jón Ormur Halldórsson, stjórnmálafræðingur, sagði eitt sinn í útvarpsviðtali að Íslendingar hefðu aðeins áhuga á fólki, en engan áhuga á prinsípum.
Þessu verðum við að breyta og komast þannig í hóp siðaðra þjóða.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, kemst að svipaðri niðurstöðu í grein í Fréttablaðinu í dag. Segir sem svo að við þurfum ekki fleiri patentlausnir eða heimsendaspár, persónudýrkun eða hatur, innihaldslausar upphrópanir og auglýsingamennsku. "Við þurfum þvert á móti að láta af hjarðhegðuninni sem klæðist þeirri skoðun að morgni sem hún heldur að flestir verði á í dag. Þurfum að líta hvert og eitt í eigin barm og horfast heiðarlega í augu við það sem við hefðum mátt gera öðruvísi eða hugsa sjálfstæðar. Það er nefnilega jafn fáfengilegt að vera liðsforingi í hefndarsveitunum nú og var að stjórna klappliðinu áður."




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
