Ég hlustaði á tvo framsóknarmenn fyrir klukkan átta í morgun hrauna yfir Birki J. Jónsson, varaformann Framsóknarflokksins.
Annar þeirra var Bjarni Harðarson, náði ekki hver hinn var.
Þeir spörkuðu í Birki með því að mæra frammistöðu Höskuldar Þórhallssonar fyrir þá hetjudáð á fundi viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun að stilla sér upp með Sjálfstæðismönnum og smíða rökin fyrir afstöðu sinni til meðferðar seðlabankafrumvarpsins eftirá.
Aumingja Birkir taldi málið hins vegar fullfrágengið á þessum sama fundi og tilbúið til afgreiðslu sem lög frá Alþingi. Hann stillti sér upp með stjórnarliðum; vildi afgreiða það með hraði úr nefndinni.
Var afstaða Birkis ómálefnaleg og óþingræðisleg?
Í morgun vildi Bjarni Harðarson taka tillit til útlegginga ESB um fjármálaeftirlit rétt eins og Höskuldur og bíða til miðvikudags, en þá er kannski von á skýrslu frá ESB um málið. Hugsanlega.
Á meðan bíður þjóðin.
Á meðan bíður ríkisstjórnin eftir að geta haldið áfram vinnu sinni.
Á meðan bíður Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn.
Framsóknarmennirnir tóku þessu næst á Evrópumálunum og komust að því að ESB er óalandi og óferjandi og ólýðræðislegt fótakefli þjóðanna sem situr um að berja aðildarlönd sín til fátæktar.
Samt samþykkti flokksþing Framsóknarlfokksins í janúar að sækja skuli um aðild að ESB.
Ekkert land, engin þjóð í Evrópu, hefur tapað efnahagslegu sjálfstæði sínu jafn rækilega og Ísland.
Ég efast um að Eysteinn Jónsson hefði nokkurn tíma getað fengið botn í málflutning ungra framsóknarmanna samtímans. Ekki geri ég það.
Blogg
Mörg andlit Framsóknarflokksins
09:22 › 24. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
