Davíð Oddsson velur sér miðla til að koma boðskap sínum á framfæri.
Hann velur Kastljósið. Gott og vel. Ekki gat það verið "Baugsmiðill".
Sigmar spyrill var svo sem ekkert öfundsverður.
Hann hélt ró sinni þótt Davíð hafi reynt að brjóta hann niður með yfirlæti og ákúrum.
Getur vitanlega verið erfitt að einbeita sér við slíkar aðstæður.
En eitthvað skorti samt upp á undirbúning þessa þrautreynda spyrils í Kastljósinu í kvöld.
Nokkur dæmi:
1) Í lögum um Seðlabanka Íslands stendur eftirfarandi í 3. gr.:
Meginmarkmið Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu verðlagi. Með samþykki forsætisráðherra er Seðlabankanum heimilt að lýsa yfir tölulegu markmiði um verðbólgu.
Seðlabankinn skal stuðla að framgangi stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, enda telji hann það ekki ganga gegn meginmarkmiði sínu skv. 1. mgr.
Og svo þetta í 22. gr.:
Yfirstjórn Seðlabanka Íslands er í höndum forsætisráðherra og bankaráðs svo sem fyrir er mælt í lögum þessum.
Um þetta þarf ekki að hafa mörg orð. Valdið er Jóhönnu Sigurðardóttur og Davíð ber að stuðla að framgangi stefnu ríkisstjórnar hennar. Seðlabankinn er verkfæri stjórnvalda. Detti þinginu í hug að gera breytingar á Seðlabankanum, þá er það gert. Ekki þarf að hlusta á röfl í Eiríki Guðnasyni eða Davíð þótt gæta megi meðalhófs.
2) Seðlabankinn er gjaldþrota. Hvernig stendur á því að ríkið varð að hlaupa undir bagga með honum?
3) Davíð kvaðst hafa farið inn á fund ríkisstjórnarinnar 30. september síðastliðinn og sagt að bankakerfið myndi falla innan tveggja til þriggja vikna.
Daginn áður hafði Davíð yfirtekið 75 prósent af Glitni og hrundið af stað keðjuverkuninni að mati margra. Hann minntist ekkert á það í Kastljósþættinum.
Tryggvi Þór Herbertsson er einn þeirra sem var ósammála aðferðinni og af þeim sökum meðal annars vék hann - að eigin sögn - sem efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde.
4) Ekki má gleyma því að Davíð var valdamesti gerandi þjóðarinnar við að umbylta þjóðfélaginu til samræmis við nýfrjálshyggjuna. Afskiptaleysið og eftirlitsleysið. Þetta þjóðfélag hrundi undan minnsta þunga alþjóðlegrar fjármálakreppu.
5) Peningamálastefnan varð til undir stjórn Davíðs 2001. Hann var forsætisráðherra þegar bindiskylda bankanna var lækkuð 2003. Hann framfylgdi peningamálastefnunni frá haustinu 2005 sem seðlabankastjóri.
HARD-talk-spyrillinn hjá BBC spurði Geir Haarde í raun aðeins einnar spurningar frá mörgum vinklum.
Hér hefði hún getað verið: Af hverju stendur þú ekki upp úr stól seðlabankastjóra Davíð í samræmi við vilja stjórnvalda og lög um Seðlabanka?
Á móti Sigmari í Kastljósinu sat maður fullur sjálfsvorkunnar, brotinn og bugaður, og orðinn allt of seinn að standa upp úr stól sínum með reisn.
Hann þekkti ekki vitjunartíma sinn.
P.s. Af hverju gat Helgi Magnús saksóknari efnahagsbrotadeildar ekki sagt satt um það að Davíð hefði sent honum bréf með ábendingu um sheikinn í Kaupþingi?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
