ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Reyndu sjálfstæðismenn við Framsókn?

20:34 › 14. febrúar 2009

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði einhvers staðar nýverið að stjórnarmyndun VG og Samfylkingar, rauðgrænt bandalag,  hefði verið komin lengra en hann hefði gert sér grein fyrir.


Með öðrum orðum að Samfylkingin hafi farið á bak við sig og Sjálfstæðisflokkinn.


Kannski hefði Geir bara átt að lesa DV á morgnana.


Berum saman DV og Morgunblaðið frá 20 janúar, skömmu eftir að Framsóknarflokkurinn hafði lýst á flokksþingi að hann gæti hugsað sér að styðja minnihlutastjórn fram að kosningum í vor:


20. janúar, þriðjudagur:
 
Forsíða DV: Samfylking á suðupunkti vegan stjórnarsamstarfs: VILJA STJÓRN MEÐ VG
(þreifingar um rauðgrænt samstarf, framsókn gæti varið minnihlutastjórn vantrausti, fjarvera ISG truflar flokksstarfið...
 
Morgunblaðið: ENGIN FRÉTT UM PÓLITÍSKAR HRÆRINGAR...!!! (endurtek: engin!!)
-----------------------------------------------
 
21. janúar. miðvikudagur:
 
Forsíða DV: RÍKISSTJÓRNIN FELLUR  -- inni í blaðinu: "Stjórnin að falla". þar stendur eftirfarandi: "Heimildir DV herma að þegar sé til staðar heiðursmannasamkomulag milli vinstri-grænna og Samfylkingar um stjórnarsamstarf ef ti slita núverandi stjórnarsamstarfs kemur."
 
Forsíða Morgunblaðsins: MESTU MÓTMÆLI FRÁ 1949 (ekkert enn um pólitískar hræringar en sagt frá harðnandi mótmælum rétt eins og DV gerði skilmerkilega.)
 
-----------------------------------------------
 
22. janúar. fimmtudagur:
 
Forsíða DV: ÍSLAND ER STJÓRNLAUST: Framsókn hugsanlega í rauðgræna stjórn, Ögmundur og Össur funduðu, ASÍ fer gegn ríkisstjórninni...   / inni í blaðinu (heil síða): RAUÐGRÆN RÍKISSTJÓRN Í SMÍÐUM!
 
Forsíða Morgunblaðsins: TÁRAGASSPRENGJUM BEITT, ályktun fundar Samfylkingar í Þjóðleikhúskjallara, stjórnarsamstarf á bláþræði.
 
-----------------------------------
Mánudaginn 26. janúar átti Morgunblaðið fyrst góðan leik og sló upp að Samfylkingin vildi fá forsætisráðuerraembættið ef áframhald ætti að vera á stjórnarsamstarfinu.

Það var ekki fyrr en 27. janúar að Morgunblaðið sló upp á forsíðu: ALLT STEFNIR Í VINSTRISTJÓRN, en þá var forsetinn farinn að tala við formenn flokkanna.

Heil vika leið frá því DV tók að segja frá þreifingum um rauðgrænt bandalag VG og Samfylkingar þar til Mogginn setti slíkt á forsíðuna.

Geir ætti nú að upplýsa þjóðina hvort eitthvað sé hæft í þeim sögusögnum að hann og Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í þreifingum við Framsóknarflokkinn um stjórnarsamstarf fram eftir öllum desembermánuði.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?