ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Skælandi Björn Bjarnason

11:01 › 10. febrúar 2009

Björn Bjarnason kennir Jóni Baldvin Hannibalssyni um bankahrunið íslenska í Morgunblaðinu í dag og ber fyrir sig skrif  seðlabankastjóra sem brást á vaktinni fyrir þjóðina og réttlætir gjörðir sínar.


Björn skrifar: „Sé einhverri einni pólitískri stórákvörðun um að kenna, þegar litið er til bankahrunsins, er það aðildin að evrópska efnahagssvæðinu, sem Jón Baldvin Hannibalsson hefur talið stærstu rauðu rósina í hnappagati sínu. Það er mannlegt að Jón Baldvin vilji skella pólitískri skuld vegna bankahrunsins og alls annars á aðra, en ekki stórmannlegt.“


Er Björn Bjarnason með óráði? Noregur á aðild að EES samningnum en er ekki hruninn. Heldur Björn kannski að það geti verið vegna þess að stjórnmálin í Noregi eru öðruvísi  en hér á landi? Kannski þroskaðri? Meiri fyrirhyggja? Minni blinda, minna brask í nafni hugsjóna um alfrjálst viðskiptalíf?


Er þetta sami Björn og skrifaði í Morgunblaðið 25 . mars 1992: „Full ástæða er fyrir okkur Íslendinga að fylgjast náið með því hvernig Finnar hafa staðið að því að móta stefnu sína og taka ákvarðanir um þátttöku í EB. Þótt aðstæður okkar og Finna séu ekki hinar sömu, er margt líkt með hagsmunum þjóðanna, þegar litið er til Evrópusamstarfsins.“


Björn lauk grein sinni 25. mars 1992 á eftirfarandi hátt: „Vaxtarbroddurinn er hins vegar í Evrópusamstarfinu og samvinnan innan EB á eftir að hafa mótandi áhrif á þróun norræns samstarfs. Að þessum breytingum og afleiðingum þeirra þurfum við Íslendingar að huga ekki síður en aðrir.“


Síðan eru liðin 17 ár og það er milliliðalaust á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins að ekkert hefur gerst annað en að Flokkurinn hefur haft ESB-málin í gíslingu í 14 ár og leikið á fiðluna undir hættulega vaxandi frjálshyggjuæxlinu á þjóðarlíkamanum.



Síðan Björn skrifaði Moggagreinina í dag eru hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Gylfi Zoega búnir að rassskella hann með eftirminnilegum hætti.

Björn Bjarnason mætti gjarnan lesa eftirfarandi 23 afglöp seðlabankastjórnarinnar, en listinn hefur gengið á netinu að undanförnu:


1.Seðlabankinn er gjaldþrota. Stjórnendur hans töpuðu 150 milljörðum í óvarlegri lánastarfsemi til svokallaðra „óreiðumanna" í því sem kallað var ástarbréfaviðskipti. Þetta jafngildir hálfri milljón króna á hvert mannsbarn í landinu.
2. Seðlabankinn nýtti ekki góðu dagana til að byggja upp gjaldeyrisvaraforða í samræmi við vöxt fjármálakerfisins, þrátt fyrir ábendingar um nauðsyn þess, m.a. frá Þorvaldi Gylfasyni. Viðbúnaður bankans við fjármálakreppu var því í skötulíki.
3. Jafnvel í vor synjaði bankinn láni frá J.P. Morgan sem bauðst á góðum kjörum og nam hærri fjárhæð en aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nú. Lýsir það ótrúlegu vanmati á viðbúnaðarþörf.
4. Bankinn áttar sig ekki á hlutverki sínu í fjármálastöðugleika og beitti ekki stjórntækjum sínum til að hemja vöxt bankanna, heldur lækkaði þvert á móti bindiskyldu sem var mjög misráðið.
5. Seðlabankinn hefur nær aldrei náð verðbólgumarkmiði sínu frá því honum var sett það í upphafi aldarinnar.


6. Bankinn vanmat augljóslega áhrif of sterks gengis á neyslu og fjárfestingagleði og þar með þenslu.
7. Að geyma gjaldeyrisforða þjóðarinnar á Englandi eftir að Icesave-vandinn var ljós og hætta á frystingu hans, er líkt því að vera í sjóorrustu hjá skipstjóra sem gleymdi púðrinu í landi. Yfirsjónin ætti að varða við þjóðaröryggi.
8. Óviðunandi er að stjórnendur Seðlabankans hafi frétt það í London í febrúar sl. að íslensku bankarnir væru í alvarlegum vanda. Ætlast verður til þess vegna stöðu og hlutverks bankans að hann hefði átt að uppgötva það sjálfur og fyrr.
9. Óskiljanlegar eru ívilnanir hinn 15. apríl í tengslum við bindiskyldu vegna útibúa erlendis eftir þær upplýsingar sem Seðlabankinn hafði fengið í London.
10. Hafi Seðlabankinn fengið svo greinargóðar upplýsingar um stöðu bankanna í London er skýrsla bankans um fjármálalegan stöðugleika frá maí sl. beinlínis villandi upplýsingagjöf.
11. Ófaglegt er að engin viðbragðsáætlun hafi verið til í bankanum vegna fjármálakreppu.
12. Lækkun og hækkun vaxta á víxl jók ekki trúverðugleika.


13. Óheppilegt var og trúlega viðvaningsháttur að Seðlabankinn keppti við viðskiptabankana um fjármagn, m.a. með skuldabréfaútgáfu og í lánalínum.
14. Viðvaningsháttur var að bankinn þagði þegar fréttir bárust af því að hann væri ekki með í samningum norrænu seðlabankana við þann bandaríska. Að bankinn skyldi ekki ná samningum við þann bandaríska var nógu slæmt en þögnin jók á ótta og óvissu og gróf enn frekar undan trúverðugleika á ögurstundu.
15. Ákvörðun um ríkisvæðingu Glitnis var stórslys. Svo röng var hún að stjórnvöld vonuðust fljótlega eftir þroti bankans svo ekki þyrfti að efna samninga! Hve illa er þá komið fyrir trúverðugleika Seðlabankans?
16. Fum og fát í gengismálum dró enn frekar úr trúverðugleika og fagmennsku í Seðlabanka Íslands. Ákvörðun um að festa gengið við 175 stig verður lengi kennd sem hrapaleg mistök, enda lifði „staðfesta" bankans í gengismálum aðeins í tvo daga, því oftrúin á krónuna var svo víðs fjarri veruleikanum á gjaldeyrismarkaði. Hún hefur síðan fallið um tugi prósenta.
17. Kastljósviðtal við formann bankastjórnar hjálpaði ekki til við að verja stærsta fyrirtæki landsins, Kaupþing, falli.
18. Þyngra er en tárum taki ótímabær yfirlýsing Seðlabankans um svokallað Rússalán. Bæði spillti það mjög þeim lánasamningum sem Geir Haarde hafði átt frumkvæði að og einnig orðspori okkar á alþjóðavettvangi.
19. Fyrrnefnt Kastljósviðtal, sem m.a. var birt í Wall Street Journal, dró nokkuð úr trúverðugleika íslensks fjármálakerfis á viðkvæmu augnabliki. Einkum þau ummæli sem voru þýdd svo:...Iceland is „not going to pay the banks' foreign debts".
20. Óheppilegt var að seðlabankastjóri skyldi hóta stjórnarformanni stærsta fyrirtækis landsins knésetningu.
21. Óheppilegt er að seðlabankastjóri dylgi um viðskipti einstaklinga við bankakerfið og ástæður beitingar hryðjuverkalaga.
22. Óheppilegt er að seðlabankastjóri aflétti einhliða trúnaði af fundum sínum með forystumönnum ríkisstjórnarinnar og samningum við IMF.
23. Óheppilegt er að seðlabankastjóri veiti seðlabankastjórum annarra ríkja tilsögn í mannasiðum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?