Eftirfarandi skrifar Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslyndra, á vef sinn: Þetta er ómálefnalegt tal manns sem fiskar í gruggugu vatni. Magnús Þór talar um að baráttan fyrir frelsi og sjálfstæði Íslands sé hafin. Magnús Þór veit að það er Kristín Halvorsen og Sósíalíski vinstriflokkurinn (VG í Noregi – kommúnistar í Noregi) sem hefur neitunarvald í rauðgrænni ríkisstjórn Stoltenbergs varðandi aðildarumsókn að ESB. Eru það þá ekki kommúnistar í Noregi sem berjast fyrir frelsi og sjálfstæði Noregs samkvæmt skilgreiningum Magnúsar? Hvers vegna talar Magnús eins og hann gerir? Óttast han áhrif VG í öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar? Óttast hann aukinn ríkisbúskap á tímum þegar allt bendir til þess að bandaríska fjármálakerfið verði að 70 % komið í hendur hins opinbera eftir eitt til tvö ár ef fjármálakreppan dýpkar og veldur meiri búsifjum. Framsóknarflokkurinn hefur gert upp fortíðina með meiri mannabreytingum og meiri endurnýjun en allir hinir flokkarnir til samans. Meira að segja Bjarni Harðarson gaf tón sem menn ættu að hlusta eftir þegar hann sagði umsvifalaust af sér eftir að hafa orðið uppvís að leynibruggi sem þingmaður. Fyrir nokkrum misserum reyndi Magnús að ná til sama fylgis hér á landi og Hagen gerði í Noregi og Haider gerði í Austurríki. Íhaldssamur þjóðernislegur populismi sem herðir að innflytjendum. Nú er það kommúnistagrýlan. Það er erfitt að halda því fram að unnt sé að sökkva dýpra en í þjóðargjaldþrot af völdum vanhæfra stjórnvalda. Segðu mér Magnús Þór hvert þú ert að fara með yfirlýsingum þínum. Ég skal hlusta.
Teningnum hefur verið kastað. Kosningar eftir rúmlega 80 daga. Þær verða afdrifaríkustu kosningar lýðveldisins. Baráttan er hafin fyrir frelsi og sjálfstæði Íslands.”
Blogg
Magnús Þór stígur þjóðernisdans
15:01 › 1. febrúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
