Hlustaði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson í RÚV-fréttum í morgun tjá sig um tölvupóstasamskipti Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra og Flanagans sem fer með málefni Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Sigmundur fordæmdi það sem hann kallaði pukur Indriða og harmaði sérstaklega að hefði leitað eftir liðsinni AGS í Icesave-deilunni við Hollendinga og Breta snemma á þessu ári. Varla gæti það gengið þar sem AGS hefði frá upphafi stillt sér upp með Hollendingum og Bretum (fórnarlambskenningin - allir eru á móti mér).
Fyrirgefið, en var Sigmundur Davíð ekki að leggja til að farið yrði fram á liðsinni Evrópusambandsins við að leysa Icesave deiluna? Er hann ekki í þessum grátkór sem búinn er að útmála ESB, AGS, Norðurlöndin og heimskapítalismann sem helstu óvini Íslands?
Sigmundur Davíð og vinur hans Bjarni Ben. hafa til þessa ekki séð neinn mun á óvinunum innan AGS og ESB. Samt vilja þeir leita til ESB um málamiðlun í Icesave deilunni en fordæma viðleitni Indriða til að leita til AGS.
Þessi málflutningur er ekki boðlegur. Hann er móðgun við heilbrigða skynsemi.
Er nokkuð að marka Sigmund Davíð?
Blogg
EKKERT AÐ MARKA SIGMUND DAVÍÐ
09:28 › 7. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
