ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ILLA UPPLÝSTUR SENDIHERRA

12:13 › 4. desember 2009

Tómas Ingi Olrich nýhættur sendiherra Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra ritar grein í Morgunblaðið í dag þar sem enn er jagast út af Icesave.
Tómas vitnar í franska skýrslu  og segir þar ekkert minnst á skyldur seðlabanka eða ríkisstjórna til þess að tryggja innstæður þegar um kerfishrun sé að ræða.

Hann er varla stiginn upp úr sendiherrastólnum þegar hann hefur skothríðina á Össur, Jóhönnu og Steingrím: „Stjórnarandstaðan hefur haldið því fram að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi varið hagsmuni Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Framangreint mál rennir stoðum undir þær röksemdir.“

Er hann ekki að saka þau um landráð?

Tómas Ingi eins og aðrir sem taka undir þrjóskulegt lagastagl hrunverjanna í Sjálfstæðisflokknum virðast ekki vita að þetta eru allt þekktar röksemdir og að pólitísk lausn málsins getur vel orðið Íslandi til hagsbóta í framtíðinni. 

Tómas ætti til dæmis að lesa þessa frétt sem birtist í DV 16, júlí síðastliðinn. Hann ætti einnig að athuga vel rök Fridu Fallan (sem Styrmir Gunnarsson rangnefnir Fallin í bók sinni) hjá sænska seðlabankanum sem minnst er á í greininni:


„Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, hitti að minnsta kosti þrjá forystumenn Landsbankans ásamt seðlabankastjórunum Ingimundi Friðrikssyni og Eiríki Guðnasyni á fundi sunnudaginn 5. október síðastliðinn (2008). Á fundinum var einnig ritari frá Seðlabankanum sem ritaði fundargerð. Samkvæmt heimildum DV gerðu bankastjórar Landsbankans áhyggjur sínar af þjóðnýtingu Glitnis nokkrum dögum áður að umtalsefni. Þjóðnýtingin hefði skapað óróa varðandi Icesave-reikningana í Bretlandi. Því væri vel við hæfi að íslensk stjórnvöld lýstu yfir að ríkið ábyrgðist allar innistæður líkt og aðrar þjóðir, þar á meðal Írar, Grikkir og Hollendingar, höfðu gert án þess að stofnað yrði til útgjalda.


Á fundinum mun Davíð hafa nefnt samtöl sín við Mervyn King, forstjóra Englandsbanka. Einn fundarmannanna, sem DV hefur rætt við, segir að Davíð hafi haldið því fram að King hefði ekki gert kröfu um að ríkið ábyrgðist innistæðurnar. Heimildarmaðurinn fullyrðir að King hljóti að hafa meint það svo að ábyrgð félli ekki á íslenska ríkið ef lögsagan yfir Icesave yrði tafarlaust flutt yfir til Bretlands. Með öllu sé óhugsandi að King hafi meint það svo að lágmarksinnistæður væru ótryggðar. Misvísandi túlkun Davíðs hafi síðar bakað ekki aðeins bankamönnum, heldur einnig Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, og Árna Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, túlkunarvanda meðal annars í frægu samtali Árna við Alasdair Darling, fjármálaráðherra Breta, strax eftir helgina örlagaríku.


 


Óbirt gögn


Davíð Oddsson sagði í þættinum Málefnið á Skjá einum í fyrrakvöld að til væru afrit af samtölum hans við Mervyn King, líklega í fórum rannsóknarnefndar Alþingis. Hann endurtók í þættinum að Mervyn King hefði efnislega sagt í umræddum samtölum að ef tryggingasjóður innistæðueigenda réði ekki við vandann myndi hann (Mervyn) ekki gera kröfu um að ríkið ábyrgðist innistæðurnar. Kvaðst Davíð hafa þakkað Mervyn fyrir.


DV hefur leitað eftir að fá afrit af þessum samtölum Davíðs og forstjóra Englandsbanka en án árangurs. 17. mars lagði DV fram eftirfarandi fyrirspurn í fjórum liðum hjá Seðlabankanum:


Ræddi Davíð Oddsson við Mervyn King í síma á fyrstu dögum októbermánaðar sl.? Ef svo: Er til upptaka af símtali DO og MK? Ef ekki er til upptaka af umræddu símtali innan Seðlabankans? Er til minnisblað um þetta símtal og efni þess? Kannast einhver innan Seðlabankans við að Davíð hafi rætt efnislega samtal sem hann er sagður hafa átt við Mervyn King í upphafi októbermánaðar?


 


Spurningum ósvarað


Engin svör hafa borist enn frá Seðlabankanum. Sambærilegar spurningar voru einnig lagðar fyrir Bank of England í níu liðum 11. mars síðastliðinn. Tveimur dögum síðar svaraði bankinn að samkvæmt starfsvenjum væri ekki hægt að afhenda upptökur eða annað efni af einkafundum og einkasamtölum sem tengdust einstökum fjármálastofnunum.


Samkvæmt því sem rakið var úr úttekt Frida Fallan, sérfræðings hjá sænska seðlabankanum, í DV í gær er almennt viðurkennt, þrátt fyrir ágalla í regluverki ESB um ábyrgð á innistæðum, að á endanum sé heimaland  gjaldþrota banka og þar með ríkið tryggjandi innistæðna til þrautavara. Fallan telur hins vegar ágallana á kerfinu svo mikla að Íslendingar eigi sér drjúgar málsbætur. Rétt hefði verið að Þróunarbanki Evrópu hefði tekið þátt í að endurfjármagna íslensku bankana og gallar kerfisins hefðu átt að knýja Breta og Hollendinga til að taka á sig hluta byrðanna af falli bankanna. Slík niðurstaða hefði skapað Íslandi betri stöðu en unnt var að fá með samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?