ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

AÐ TALA NIÐUR FYLGIÐ

05:50 › 4. desember 2009

Málþóf er það og málþóf skal það heita.

Því spyr enginn stjórnarandstöðuna sem vælir undan vinnutíma, skorti á matarhléum, stuldi af bekkjum sínum, hvaða gagn hún telur sig vera að gera þjóðinni með málþófi?

Ætlar hún að hnekkja meirihlutavaldinu sem hún vill að sé virt þegar það passar?

Hvaða gagn hefur þjóðin af 60 klukkustundum í viðbót af Icesave á Alþingi?

Hefur hún af því ógagn?

Sennilega er málþæfingum slétt sama. Sjálfstæðismenn vita vel að þeir sjálfir skuldbundu þjóðina þegar þeir leyfðu dekurbankanum, sem studdi svo vel við flokkinn og frambjóðendur hans, að fara ofan í vasa sparifjáreigenda í Hollandi og Bretlandi. Allt var það gert með vitund, vilja og samþykki flokksins sem réði fjármálalífinu eins og það lagði sig. Þeir vissu að ríkið og Seðlabankinn yrði að lána tómum tryggingasjóði innstæðueigenda fé ef illa færi. Þeir leyndu þjóðinni mikilvægum upplýsingum. Þar ber Samfylkingin einnig ábyrgð.(Svo sterk tök hafði Sjálfstæðisflokkurinn á öllu fjármálalífinu að Björgvin G. fékk ekki að vera með í fullorðinsleikjum flokksins sem átti landið, kvótann og stjórnkerfið.

En vegur stjórnarandstöðunnar er minni í nýrri fylgiskönnun en í þeirri næst á undan.
Það er afrek frammi fyrir ríkisstjórn sem neyðist til að herða að fyrirtækjum og heimilum.

Sennilega tekur því ekki að hefta þennan fíflagang.

Þetta er kallað að tala niður fylgið.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?