ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

VEIKLEIKINN ESPAR STJÓRNARANDSTÖÐUNA

13:28 › 30. desember 2009


Stjórnarandstaðan er greinilega ráðin í því að fella ríkisstjórnina á Icesave-málinu burtséð frá hagsmunum þjóðarinnar. Henni er sama um hagsmuni almennings, fyrst og síðast skuli stjórnin felld á Icesavemálinu.


Veikleiki ríkisstjórnarinnar nú sem áður er andófsliðið í VG sem heldur ríkisstjórninni í gíslingu. Það er einmitt sá hópur sem veikir stjórnina svo mjög að hún getur ekki séð við spuna Sjáflstæðisflokksins nú með bréfasendingum lögmannsstofnunnar Mischon de Reya.


Sama á við um Framsóknarflokkinn og þrasarana sem þar ráða ferðinni. Þeir hvetja til mótmæla á Austurvelli jafnvel að þingflokki sínum forspurðum.


Á endanum heimta stjórnarandstæðingar úrklippur úr blaðagreinum í Bretlandi. Þóf í hið óendanlega.



En hvað um hagsmuni þjóðarinnar? Allir vita að ef framsóknarþrasararnir og sjálfstæðismenn kæmust til valda á morgun myndu þeir samþykkja Icesavefrumvarpið óbreytt fyrsta virka dag á nýju ári.

Með meiri þingstyrk og meiri kænsku væri ríkisstjórnin og þingmeirihlutinn búinn að leysa þjóðina úr Icesaveálögunum. Þennan styrk hefur hún ekki og þarf að verja deginum í dag til fundarhalda við stjórnarandstæðinga sem hafa nú alla þræði í hendi sér um framvindu málsins.  Stjórnarandstæðngar skipta sér ekkert af hagsmunum almennings nú þegar þeir eygja von um að reyna styrk þingmeirihlutans og ríkisstjórnarinnar.


Stjórnarliðar geta ekki hafið þingfund í ágreiningi við stjórnarandstöðuna vegna veikleika sinna. Stjórnarandstæðingar espast upp við að finna mýkt og viðnámsleysi stjórnarliða. Hún hefur í hendi sér að tala út í eitt, tefja og þæfa málið eitt ár enn ef henni svo sýnist. Þessu vindur fram meðan þjóðin bíður eftir myndugleika og tækifærum til þess að losna úr Icesaveálögunum og geta snúið sér að nýjum brýnum verkefnum.


Meirihlutinn þorir ekki að beita þingskaparlögum – lögmætum aðgerðum – til þess að stöðva umræður og ganga strax til atkvæðagreiðslu.  


Jafnvel Ögmundur, sem skákaði sjálfum sér úr ríkisstjórn, hefur sagt að nú sé nóg komið og ekkert annað að gera en að ganga til atkvæðagreiðslu.


Sú afstaða hefur líka staðið upp úr sumum stjórnarandstæðingum. Má nefna Guðmund Steingrímsson, Framsóknarflokki, sem vill nýta lögmætan rétt sinn til að greiða atkvæði um málið sem fyrst.


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?