ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

FAÐMLAG HÆGRI- OG VINSTRIÖFGAMANNA

02:03 › 30. desember 2009

Ég vil biðja lesendur þessarar færslu að leggja mat á texta tveggja manna sem hér skal vitnað til og teknir eru úr ferskum en taugaveikluðum færslum þeirra beggja vegna Icesave-málsins í dag.
Sá hinn fyrri er eftir Pál Vilhjálmsson vinstrimann og eitt sinn áhanganda Samfylkingarinnar sem hann nú hatar.
Hinn síðari er Baldur Hermannsson sem alla tíð hefur verið kenndur við ystahægrið í landinu en er þó dálítill húmoristi ólíkt Páli.
Markvert er við neðangreinda texta, að boðskapurinn þeirra er hinn sami, áherslurnar hinar sömu hugmyndafræðin virðist einnig hin sama.


Áróðurinn er hinn sami!


Spurningin er: Hvort á þá að kenna Pál og Baldur við ystahægrið eða ystavinstrið?


Meti hver fyrir sig:


Páll Vilhjálmsson:


“Óbreyttir þingmenn Vinstri grænna bjarga sennilega flokknum frá klofningi með því að fella Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Átakalínan liggur milli hugsjónamanna sem vilja varðveita orðspor Vg um að taka prinsippafstöðu í stórmálum og valdatæknimönnum sem telja fyrir mestu að flokkurinn eigi aðild að ríkisstjórn.
Ögmundur Jónasson fer fyrir hugsjónafólkinu en Steingrímur J. og Árni Þór Sigurðsson liðþjálfi hans fyrir valdatæknimönnum.
Stjórnmálaflokkur sem ætlar að lifa af núverandi ríkisstjórn verður að líta til lengri tímabils en næstu missera. 
Róttækur vinstriflokkur, byggður á hugmyndum um þjóðfrelsi og réttlæti, getur ekki lagst flatur fyrir óbilgjörnum kröfum gamalla nýlenduvelda og teflt efnahagslegri framtíð þjóðarinnar í tvísýnu.
Ef þingmenn Vinstri grænna samþykkja Icesave-frumvarpið á morgun er tilvistargrunnur flokksins eyðilagður.


Baldur Hermannsson:


“Ásmundur Einar Daðason er prúður maður og vel gefinn. Hann er íslenskur sveitamaður í húð og hár eins og þeir gerast bestir. Þótt félagar hans í Vinstri grænum hafi unnvörpum svikið loforð og stefnu flokksins, þá hefur hann staðið af sér svikastorminn og hann hefur áunnið sér slíkt traust að félagið Heimssýn, sem berst fyrir fullveldi Íslands, hefur gert hann að formanni sínum.
Ásmundur stendur nú afsíðis í þingflokki sínum og heldur á fjöreggi þjóðarinnar í hendi sér. Hann getur beygt sig fyrir svikastorminum og greitt Icesave atkvæði sitt. Hann getur líka staðið hnarreistur af sér storminn og greitt Íslandi atkvæði sitt.
Í þeirri kosningu mun ráðast hvor þessara ungu manna verður Nýliði ársins 2009.”

Kannski eru Baldur og Páll bara frjálshyggjumenn og stjórnarandstæðingar og dreymir um ríkisstjórn þjóðernirhægrivinstrieinangrunarsinna undir stjórn Davíðs Oddssonar með andúð á Baugsmönnum í stefnuskránni.

Dálítið forneskjulegt og "fixerað". Er ekki til lyf við þessum vandamálum þeirra.


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?