Stundum held ég að ég þurfi að segja allt sjálfur sem mér liggur á hjarta.
Að þessu sinni nægir að benda á pistil Ólafs Arnarsonar á Pressunni.
Einnig er nauðsynlegt að benda á þessa færslu Teits Atlasonar sem horfir álengdar á glapræðið hér uppi á skerinu. Hún ber yfirskriftina Ósvinnuna verður að afhjúpa.
Jafnvel mönnum sem fullir eru samúðar, reiðubúnir að fyrirgefa, fullir skilnings á því að allir menn geta iðraðst og bætt ráð sitt, jafnvel þeim ofbýður ósammfeilnin og blygðunarleysið sem felst í ráðningu manna í lykilstöður fjármálakerfisins.
Er ekki sjálfsögð kurteisi við kjósendur og aðra þá sem vilja halda hreingerningunni áfram, að bíða með að ráða hrunliðið til ábyrgðarstarfa þar til sérstakur saksóknari hefur sagt sitt síðasta orð. Þar til rannsóknarnefnd Alþingis hefur skilað skýrslu sinni.
Þess í stað erum við höfð að háði og spotti í erlendum blöðum, til dæmis Daily Telegraph sem rifjar upp að Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins hefði verið meðal þeirra 25 sem taldir voru bera ábyrgð á kreppunni samkvæmt úttekt Time Magazine.
Blogg
ÓSKAMMFEILNI OG BLYGÐUNARLEYSI
17:37 › 29. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
