ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

STUTT Í HEFNDINA OG HATRIÐ

07:30 › 28. desember 2009

Þorkell Sigurlaugsson, eitt sinn
framkvæmdastjóri Burðaráss - eignarhaldsfélags Eimskipafélags Íslands, ritar
merkilega færslu á spjallþræði fésbókar og á þar orðastað við Sigurð Boga
Sævarsson blaðamann.

Hafa ber í huga að Þorkell vann
hjá Eimskipafélaginu áður en það komst í hendur Björgólfsfeðganna.

Þorkell svarar Sigurði Boga
meðal annars með eftirfarandi hætti:

“Voru það ekki
útrásarvíkingarnir þeir Björgólfsfeðgar sem settu Eimskip á hausinn? Þeir gerðu
þúsundir landsmanna fátækari og hröktu burtu flesta stjórnendur félagsins þegar
þeir tóku við stjórn félagsins. Fórnarlömbin voru saklaust fólk.”

Síðar segir Þorkell og svarar
enn Sigurði Boga:

“Já, Sigurður, svo kynntist ég
þessu enn betur en þú og þá sá ég hvað stutt var í hefndina, hatrið og hvað
Hafskipsmálið mótaði alla þeirra valdabaráttu um Eimskip. Ég átti samt aldrei
annað en góð samskipti við Björgólfana þar til þeir komust í valdastöðu. Þá
varð ég að yfirgefa óskabarnið. (Eimskip)”

Merkilegt þetta með hatrið og hefndina. Þorkell fer varla með rangt mál um þessi atriði.

Fyrir þá sem ekki vita hlaut Björgólfur Guðmundsson dóm í Hafskipsmálinu svonefnda á níunda áratug síðustu aldar. Margt var reyndar rotið við þann málatilbúnað og gjaldþrot Hafskips eins og rakið hefur verið, m.a. í tveimur nýlegum bókum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?