ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

HVATT TIL MEÐALMENNSKU Á ÞINGI

15:56 › 28. desember 2009

Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki, og fleiri kvörtuðu yfir því á þingi í dag að fyrirhugaðir væru kvöldfundir á Alþingi vegna Icesave. Pétur mótmælti sérstaklega fyrir hönd barna sem gætu ekki notið samvista sem skyldi við foreldra sína, kjörna fulltrúa.


Eru kvöldfundirnir ekki afleiðing af málþófi stjórnarandstöðunnar í Icesave-málinu? Getur Pétur ekki sjálfum sér um kennt?


Ég hraðlas grein eftir Jón Steinsson hagfræðing í Mogganum í dag. Hann segir þar að illa hafi gengið að hækkað kröfur um gæði þess sem prófessorar og aðrir háskólamenn senda frá sér að rannsóknum og vísindalegum niðurstöðum. Þeir geti fengið fengið ódýra 30 punkta fyrir tvær birtingar á fræðigreinum í óþekktum íslenskum ritum en aðeins 20 punkta fyrir fræðigreinar sem  sleppa í gegn um nálaraugu ritrýndra vísindatímarita.


Jón var sem sagt að spyrja um gæði þess sem menn setja á blað í virðulegri akademíu Háskóla Íslands. Þessu yrði að breyta ef ætlunin væri að hífa HÍ upp í flokk 100 bestu háskóla heims.


Má ég biðja um að svipaðar kröfur verði gerðar til þess sem þingmenn segja í ræðustól. Gæðin eru oftast í öfugu hlutfalli við lengdina.


Þetta merkir nánast að því meir sem talað er um Icesave því minna er vitið í því sem sagt er.

Jón Steinsson segir að með fyrirkomulaginu í HÍ sé hvatt til meðalmennsku.

Ég segi að hvatt sé til meðalmennsku á þingi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?