„En Drago heldur sínu striki og þann 21. september 2008 refsa Slóvenar ríkisstjórn Janez Jansa í kosningum. Stjórnarskiptin gera það að verkum að hann getur dregið andan léttar. Um skeið í það minnsta. "Ég geri mér engar grillur um það," segir hann, "þetta er sama sagan alls staðar í Evrópu: Um leið og stofnun sem vinnur gegn spillingu fer að stinga nefninu ofan í mál sem tengjast valdhöfum stofnar hún sér í hættu. Þá fara menn að krukka í hana, jafnvel leggja hana niður.“
(Eva Joly / Maria Malagardis - Hversdagshetjur bls. 92 - 2009 )
Drago Kos var lögreglumaður í Slóveníu og sýndi meiri kjark og þrautseigju en margir aðrir í landi sínu gagnvart spillingu valdhafa. Hann er nú forseti GRECO, ríkjahóps innan Evrópuráðsins sem berst gegn spillingu. GRECO hefur gert nokkrar skýrslur um Ísland frá árinu 1999, mjög áhugaverðar margar hverjar. Íslenskir fjölmiðlar og stjórnkerfið hafa sýnt þessum skýrslum tómlæti. Samt varaði GRECO við spillingarhættu á Íslandi samfara mikilli einkavæðingu þegar árið 2003. Reyndar urðu tilmæli GRECO til þess að lögum um fjármál stjórnmálaflokka var breytt árið 2006.
Skömmu áður runnu samtals 55 milljónir í sjóði Sjálfstæðisflokksins frá FL Group og Landsbankanum.
Þetta er aðeins dæmi.
Ofangreind tilvitnun í bók Evu Joly og Maríu Malagardis leiddi hugann að því þegar Georg Ólafsson forstjóri Samkeppnisstofnunar gerði húsleit hjá olíufélögunum í desember 2001 vegna gruns um ólöglegt samráð.
Stofnuninni var að nauðsynjalausu breytt árið 2005. Þar með var hægt að segja Georg upp störfum. Árin á undan hafði stofnunin verið fjársvelt. Eftir breytingarnar árið 2005 var ráðinn þægur sonur Framsóknarflokksins í forstjórastarf Samkeppniseftirlitsins á nærri tvöfalt hærri launum en forverinn.
Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra lagði sjálfur niður Þjóðhagsstofnun og losaði sig við Þórð Friðjónsson sem gagnrýnt hafði efnahagsstefnu ríkisstjórnar hans.
Spillingin hér er ekkert öðruvísi eða skárri en annars staðar.
Drago Kos hefur rétt fyrir sér.
Blogg
AÐ SKRÚFA FYRIR RANNSÓKN ER SPILLING
14:01 › 27. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
