ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

FORMAÐURINN BREGST LIÐSMÖNNUM SÍNUM

06:09 › 22. desember 2009


Í meira en ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn – eftir Hádegismóalínunni – sýnt hroka, óbilgirni, ábyrgðarleysi og skort á iðrun og vilja til samvinnu um endurreisn.

Ég hafði einnig orð á þessu í pistli fimmtudaginn 17. desember.
Degi síðar vitnaði ég í endurreisnarskýrslu þá sem samin var fyrir landsfund flokksins í lok mars á þessu ári. Á þeim sama fundi tók Bjarni Benediktsson við formennsku í flokknum af Geir H. Haarde. 

19. desember birtist langt viðtal Agnesar Bragadóttur við Bjarna í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins.

Hvaða strókur stóð upp úr formanninum unga í viðtalinu?

"Fellum Icesave og höfnum aðild að ESB."

Af hverju les Bjarni ekki framangreinda endurreisnarskýrslu í rólegheitum frekar en að vera með þennan afturhaldssama rembing? Ég er alveg til í að samlesa textann með honum. Þessi vitleysa er honum ekki samboðin.

Hvernig stendur á því að Bjarni vill ekki taka til í Sjálfstæðisflokknum og siðbæta hann?
Það er fáránlegt af honum að fylgja villuljósum ofan úr Hádegismóum eða úr fylgiskönnunum.
Fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins í nýlegum könnunum er sýndaraukning og stafar af töfum á afgreiðslu Icesave, sem flokkurinn stendur sjálfur fyrir, og töfum á framkvæmd stefnu stjórnvalda við endurreisn heimila og fyrirtækja. Auk þess eru smám saman að koma fram hin raunverulegu áhrif bankahrunsins og falls krónunnar, meðal annars í tímabundnum en óhjákvæmilegum skattahækkunum.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf einmitt á formanni að halda sem hefur kjark til að flytja afhjúpandi ræðu byggða á endurreisnarskýrslu sjálfstæðismanna sjálfra frekar en að endurtaka röflið ofan úr Hádegismóum.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?