ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

MEÐVITUNDARLAUS ALMENNINGUR

10:23 › 21. desember 2009


1. Shell, ESSO og BP seldu eldsneyti á sama verði í áratugi í hægindum samráðsins og skömmtuðu sér tekjur. Ástæða: meðvitundarlaus almenningur sem keypti bensín eftir stjórnmálaskoðunum en ekki verðlagi.
2. Svo kom Samkeppnisstofnun um miðjan tíunda áratuginn í krafti EES-samningsins. Sex ár liðu að grænmetismálinu.
3. Svo var gerð húsleit hjá olíufélögunum í desember 2001.
4. Sérhagsmunagæsluliðið greip til varna, meðal annars á Alþingi, pakkaði í vörn fyrir forstjórana. Ráðamenn hringdu og höfðu í hótunum við Georg Ólafsson þáverandi forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Georg var lagður niður af Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum 2005. Hann hafði snert hina ósnertanlegu. 
5. Enn liðu ár þar til almenningur áttaði sig á að ÞAÐ ER GLÆPSAMLEGT AÐ FARA MEÐ SAMRÁÐI OFAN Í VASA ALMENNINGS!

Allt er þetta spurningu um uppeldi, þekkingu og vitund. Við fengum regluverk að utan, svo fór meðvirk þjóð í uppeldi og veit nú að samráð er kríminellt.

Vitund kjósenda er takmörkuð og því erum við villuráfandi, með vondan fókus á hlutina og veitum lítið aðhald.
Þess vegna fór fjármálaelítan sínu fram og þóttist sitja á samráðsfundum um að bjarga þjóðinni frá bankahruni. Hún kaus að gera ekki neitt, fór ekki einu sinni að lögum.

Við megum ekki alltaf grípa í rassinn of seint.
Við getum alltaf farið með eina bæn kvölds og morgna og reynt að læra af henni:

Þeir sem öðlast forréttindi af einhverjum toga láta forréttindi sín aldrei af hendi átakalaust.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?