ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ENN AFHJÚPAR BALDUR GLÆPI STJÓRNVALDA

13:50 › 19. desember 2009

Enn kemur Baldur Guðlaugsson upp um sig og klíkuna sem hafði örlög íslenska fjármálakerfisins í höndum sér, vitandi að það var orðið 10 sinnum stærra en árleg þjóðarframleiðsla.


 


Í varnargrein í Morgunblaðinu í dag gerir hann grein fyrir þeim áhyggjum sem menn höfðu af veikleika Tryggingasjóðs innstæðueigenda mörgum mánuðum fyrir bankahrunið.


 


Baldur vísar til fundar sem hann sat í samráðshópi þriggja ráðuneyta, FME og Seðlabankans 31. júlí árið 2008.


 


Baldur segir orðrétt: “Í fundargerð þessa fundar samráðshópsins kemur fram að ég hafi sagt að ég teldi að það gæti orðið banabiti fyrir bankana ef umræðan færi af stað um veikleika Tryggingasjóðsins. Þar var ég að sjálfsögðu að vísa til þeirrar opinberu umfjöllunar sem átt hafði sér stað í Bretlandi nokkru áður og hafði þá leitt til nokkurs útflæðis af innlánsreikningum Landsbankans. Var augljóst að það hefði getað valdið áhlaupi breskra innstæðueigenda ef endurnýjuð og aukin umræða hefði farið af stað um að mikill vafi léki á því að hægt yrði að standa undir innstæðutryggingunum.”


 


Athyglisvert er að Baldur véfengir ekki skyldu stjórnvalda /Seðlabankans til að standa undir innstæðutryggingum heldur fjallar aðeins um það HVORT hægt yrði að standa undir þeim.
Þessi tilvitnun leiðir endanlega fram sannleikann um að Landsbankanum leyfðist að taka fé að láni hjá breskum og hollenskum sparifjáreigendum með vitund vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞEIM HAFI VERIÐ FULLKUNNUGT UM AÐ TRYGGINGASJÓÐURINN GAT EKKI AÐ LÖGUM ÁBYRGST LÁGMARKSINNSTÆÐUR hvar sem var.


 


Baldur afhjúpar í leiðinni að tafirnar á því að ábyrgjast Icesave er allt tómt kjaftæði. STJÓRNVÖLDUM VAR ALLTAF FULLKUNNUGT UM ÁBYRGÐ ÍSLENSKRA STJÓRNVALDA OG FENGU AUK ÞESS MARGVÍSLEGAR ATHUGASEMDIR, ÁBENDINGAR, MERKI UM ÓJAFNVÆGI OG JAFNVEL HÓTANIR FRÁ BRETUM.


 


Hvernig í ósköpunum gátu Baldur og aðrir snillingar sem um véluðu – flestir innmúraðir sjálfstæðismenn eins og vinirnir í Landsbankanum – látið það viðgangast að Landsbankinn héldi áfram að safna 300 milljörðum króna meðal sparifjáreigenda í Hollandi frá og með 29. maí 2008 og fram að hruni?


 


Þetta eru einhver ægilegust afglöp sem spurnir fara af og nær fullvíst að einhverjir verða sóttir til saka fyrir athæfið.


 


Síðan skýlir Baldur sér á bak við það að þessar upplýsinar hafi verið opinberar og ekki hefði þurft neina innherjaupplýsingar til.


Er Baldur að segja að Tryggvi Pálsson, seðlabankamaður, sem sat fundi með honum allt árið 2008, hafi verið að ljúga þegar hann vitnaði um að samráðshópurinn hefði ALLTAF verið með innherjaupplýsingar í höndunum. Alltaf frá byrjun árs 2008 eins og fram kom í réttarhöldum yfir Baldri í vikunni.

Baldur segir í grein sinni að hann hafi selt hluti sína í Landsbankanum eftir að sýnt þótti að bankarnir væru að komast á lygnari sjó og viðræður hafnar um flutning á Icesave í breska lögsögu.
Hvaða bull er þetta? Baldur seldi bréfin þegar hann fékk hrollinn eftir fall Lehman-bankans um miðjan september 2008. Þá vissi Baldur fyrir víst að Landsbankinn gæti ekki lifað af.

Allar þessar upplýsingar hefðu mátt koma fram fyrr. Þá hefðum við getað losað okkur undan öllu Icesave-bullinu og töfunum sem hrunverjarnir í Sjálfstæðisflokknum hafa staðið fyrir ásamt Framsóknarmönnum og andófsliðinu í VG.
Allt var það bull í ljósi þessara upplýsinga. Ónauðsynlegur krókur sem ber vott um vankunnáttu, skammsýni og vanþroska.

Í Mogganum segir svo Bjarni Benediktsson í dag: "Sjálfstæðisflokkurinn mun greiða atkvæði gegn Icesave-frumvarpinu og reyna að fella það. Það má ekki samþykkja þetta frumvarp."

Flokksformaður með bilaða dómgreind.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?