EItt það besta sem hægt er að gera til að bæta andlega líðan sína í dag er að lesa grein Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur stjórnsýslufræðings í Fréttablaðinu í dag.
Um leið og ég þakka henn kærlega fyrir pistilinn get ég ekki stillt mig um að birta síðasta hluta hans hér:
„IceSave er ekki einkamál Íslendinga. IceSave snýst um siðferði og pólitík í samskiptum þjóða. IceSave er dæmi um það hvernig menn leyfa sér að ganga eins langt og hægt er og komast upp með það. Með IceSave gengu menn lengra en regluverkið hafði gert ráð fyrir að væri hugsanlegt. Íslendingar nutu frelsisins sem fylgdi EES samningnum á meðan allt lék í lyndi án þess að axla þá ábyrgð sem frelsinu fylgir. Nú þegar allt er hrunið, virðast þeir heldur ekki ætla að taka ábyrgð á aðild sinni að samningnum. Þess vegna er IceSave nú pólitísk milliríkjadeila. Sem pólitískt mál snýst IceSave um lýðræðislega ábyrgð. Stjórnvöld sem ekki gangast við ábyrgð sinni með hæfilegri auðmýkt og virðingu bregðast þjóð sinni. Nú er runninn upp tími sjálfskoðunar og heiðarleika. Stjórnvöld mega ekki láta þjóðina halda áfram að engjast í IceSave snörunni, heldur láta af afneitun og hefja nýja byrjun með nýjum tón. Hér þarf ríkisstjórnin að eiga frumkvæði.
Brátt fá íslensk stjórnvöld einstakt tækifæri til að vinna aftur traust þjóðarinnar og umheimsins. Þetta tækifæri felst í útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar þingsins á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Hér þarf Alþingi Íslendinga að ganga fram fyrir skjöldu og lýsa því yfir gagnvart umheiminum að niðurstöður rannsóknarnefndarinnar verði nú notaðar til að gera upp fortíðina, hér verði engu undan skotið heldur allt gert til að byggja hér upp heiðarlegt siðmenntað samfélag sem umheimurinn geti treyst.
Í tengslum við útgáfu skýrslunnar þarf að boða erlendar og innlendar fréttastöðvar til fréttamannafundar og nota þá augnabliksathygli umheimsins sem þar gefst til að slá nýjan tón. Þannig hefst hin siðferðilega og pólitíska endurreisn Íslands.
Erlendis eiga Íslendingar marga góða vini. Óvinir Íslands standa okkur nær.“




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
