ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÁSKRIFENDUM DV FJÖLGAR UM 40 PRÓSENT!

18:45 › 16. desember 2009

Athugasemdakerfið á blogginu hans Baldurs Hermannssonar hefur að undanförnu verið líflegur vettvangur skoðanaskipta. DV, Hreinn Loftsson, Reynir Traustason, ég sjálfur  og útgáfan Birtingur hefur verið milli tannanna á mönnum þar.

Baldur er gamalgróið íhald og hefur tekið stórt upp í sig um fréttir DV um Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins. Svo bætast við hatursfullar athugasemdir sem enginn hirðir um, svona eins og þær að penna mínum stýri Jón Ásgeir Jóhannesson.

Um slíkt er bara hægt að segja að ég er fullfær um að halda úti mínum skoðunum sjálfur.(Ég hef reyndar einu sinni tekið í höndina á Jóni Ásgeiri - fyrir meira en fjórum árum.)
Ég mundi halda úti sömu skoðunum þótt ég yrði ráðinn pistlahöfundur á Morgunblaðinu.

Hreinn Loftsson hefur blandað sér í umræðuna hjá Baldri og upplýsti meðal annars í dag að áskriftum að DV hefur fjölgað um 40 prósent á nokkrum vikum. Mér finnst það mjög ánægjulegt og lít á það sem vísbendingu um að fréttaöflun og skrif okkar á DV falli lesendum vel í geð.
Lesendum færi ég mínar bestu þakkir og heiti því að reyna að standa mig - og standa í lappirnar.

Ég mæli með blogginu hans Baldurs; hann og Hreinn hafa tekist þar á um Bolludagsmálið svonefnda svo nokkuð sé nefnt.
 
Ég skrifaði rétt áðan eftirfarandi athugasemd á bloggið hans:

Sæll Baldur. - Þetta er býsna lífleg umræða hér hjá þér, einn og einn dálítið ofstækisfullur. Mér þykir ágætt þegar orð mín og pistlar bíta. Eitt sinn kunni ég minna til verka og var fáfróðari. Nú þykist ég skynja betur hvernig í pottinn er búið. Það hefur ekki aukið álit mitt á Sjálfstæðisflokknum. Öðru nær. Mér sýnist að þar innan veggja hafi í innvígðum og innmúruðum hægindum þróast hugarfar forréttindastéttar sem vönust er því að ráða öllu á sviði viðskipta og stjórnmála. Eva Joly kallar þetta að lifa í hægindum ofar lögum og án refsinga. Þetta hugarfar hefur lítið með hugmyndafræði að gera - svo sem eins og frjálshyggju - heldur aðeins sérhagsmuni. - Þyki mönnum þetta óalandi og óferjandi staðhæfing verður svo að vera. Mætti ég biðja vini þína hér á blogginu að styðja mál sitt rökum. Einhver Guðmundur er til að mynda ansi ofstækisfullur. Getur þú ekki beðið hann um að feta stíg hófstillingarinnar.


Held reyndar að þú ættir sjálfur að reyna að hafa flugufót fyrir því sem þú segir. Það gerum við á DV og þess vegna gengur útgáfan vel. Fólk vill staðreyndir.


Og kjark!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?