Baldur heitir maður Hermannsson. Hann hefur lengi verið orðaður við ystahægrið og hálfgerða fanatík á hægri væng stjórnmálanna.
Hann bloggar eftirfarandi á mbl.is og er mikið niðri fyrir vegna fréttaflutnings DV af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, og fjárfestingaræfingum sem hann var flæktur í:
„Við skulum bara átta okkur strax á því að rógurinn bítur alltaf. Rógurinn hefur þegar bitið Bjarna Ben og mun halda áfram að gera það. Það var óskiljanlegt fljótræði að hringja í Hrein Loftsson, manninn með 300 milljónirnar, manninn sem löngu hefur sagt skilið við siðaðra manna samfélag.
Bjarni Benediktsson er heiðarlegur maður, stálgreindur, vandaður og vel upp alinn - í einu orði sagt: drengur góður. Hann mun standa af sér rógsherferðina en sá sigur verður honum dýrkeyptur.“
Það er nú svo.
Skyldi Hreinn Loftsson hafa sagt skilið við siðaðra manna samfélag þegar hann sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum um árið með þeim orðum að hér á landi ríkti ógnarstjórn?
Baldur veit að þegar úrsögn Hreins fór hátt í fjölmiðlum var Davíð Oddsson forsætisráðherra þjóðarinnar.
Hvoru megin var samfélag siðaðra manna á þeim tíma Baldur?
Það fór greinilega fram hjá mörgum að Hreinn Loftsson upplýsti í Fréttablaðinu í gær, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði viljað gera hann að útvarpsstjóra árið 1997: „Sjálfstæðisflokkurinn vildi gera mig að útvarpsstjóra á sínum tíma, árið 1997,“ upplýsir Hreinn í blaðinu.
Þetta er mjög áhugavert og fréttir fyrir mig, gamlan RÚV-ara.
Væntanlega hefur Hreinn sagt nei takk við Foringjann.
Var það eitt af mörgum skrefum Hreins út úr samfélagi siðaðra manna Baldur?
Þessi Baldur var löngum orðaður við bláu höndina sem náði á sínum tíma tangarhaldi á RÚV, einkum Sjónvarpinu. Allt var þar vel valdað af Flokknum. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson formaður útvarpsráðs nær jafn lengi og Davíð sat á valdastóli. Meira mætti um það segja.
Matthías Johennessen fyrrum Moggaritstjóri segir á vef sínum frá ofurlitlu bréfi til sín frá Hrafni Gunnlaugssyni, enn einum innvígðum og innmúruðum Sjálfstæðismanni sem hafði árið 1974 áhyggjur af valdaleysi Flokksins innan RÚV.
Í umræddu bréfi Hrafns stendur skrifað:
„Við verðum því að safna liði og hefja sókn. Ég hef sjálfur reynt að byggja upp tengsl við góða og hugrakka drengi sem ég veit að vilja berjast og þora. Þú manst eflaust enn þegar ég kom með Davíð Oddsson í fyrsta sinn upp á skrifstofu til þín, og Baldur Hermannsson á eftir að reynast fallbyssupenni þegar fram í sækir. Rúnar (Gunnarsson,á sjónvarpinu) á einnig eftir að fylgja okkur eftir gegnum þykkt og þunnt, þannig mætti nefna fleiri, en við verðum að byggja upp breiðfylkingu og standa saman.“
Má ég spyrja þig Baldur Hermannsson: Er hið svokallaða „siðaða samfélag“ útskýrt og skilgreint af innvígðum og innmúruðum sjálfstæðismönnum í launhelgum Flokksins?
Má ég biðja um að fá að vera utan við þetta svokallaða siðaða samfélag þitt.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
